Söfnun til styrktar Mænuskaðastofnun Íslands

Í gærkvöldi var söfnun til styrktar Mænuskaðastofnun Íslands. Því miður var ég upptekin við annað og gat ekki fylgst með. Við Lilló vorum búin að ákveða að gefa í söfnunina og um það sá hann í gærkvöldi. Okkur finnst málið vera okkur skylt. Hefði Sturla sonur okkar lifað sitt slys, hefði það verið líf bundið í hjólastól. Hann fékk ekki það tækifæri nema í örfáar vikur, en við fengum tækifæri til að gefa í þessa söfnun. Í dag er ég hinsvegar búin að vera að leita frétta af söfnuninni á vefmiðlum og hef ekkert fundið. Nú vona ég bara að söfnunin hafi gengið vel og minni á að enn er hægt að gefa.   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

13.03 kom frétt þess efnis að 65 milljónir hefðu safnast, frábært. Ég er handviss um að þær eiga eftir að koma að góðum notum.

Kristín Dýrfjörð, 20.9.2008 kl. 14:35

2 identicon

Ég held að söfnunin hafi gengið mjög vel. Fylgdist með dagsrkánni og það var stórkostlegt að sjá hvað það er mikill kraftur í þeim sem standa á bak við hana.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 14:56

3 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Bergljót Hreinsdóttir, 20.9.2008 kl. 19:56

4 Smámynd: Valgeir Bjarnason

Ég verð alltaf mjög hugsi þegar safnanir sem þessar eru í gangi. Vissulega er málið bæði mikilvægt og brýnt. Framtak þeirra sem að því standa er svo sannarlega aðdáunarvert. Ég fagna með öðrum yfir góðu gengi þessarar söfnunar og óska aðstandendum hennar til hamingju með það.

En það sem ég set stórt spurningarmerki við er: Á svona heilbrigðismál ekki heima á fjárlögum, þannig að allur kostnaður verði greiddur úr sameiginlegum sjóðum landsmanna? Ég varð fyrir talsverðum vonbrigðum þegar ég heyrði að ríkisstjórnin ætlar að leggja 1,5 milljón til málefninsins. Hún mátti vera mikið rausnarlegri en það.

Valgeir Bjarnason, 21.9.2008 kl. 00:03

5 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Fram kom að ríkisstjórnin hefur skuldbundið sig til að leggja þokkalega árlega upphæð til Mænuskaðastofnunarinnar þessarar - voru það 10 milljónir á ári í nokkur ár? Man það ekki alveg, en 1.5 milljónin var aukalega.

Hitt er annað mál að rannsóknir þessar ættu vissulega heima á ríkisfjárlögum löggjafarvaldsins. Ættu ekki að vera "hand-out" framkvæmdarvaldsins. Tel víst að þjóðin (skattgreiðendur) myndu styðja það heilshugar. Ætli fram hafi komið frumvarp frá þingmönnum um slíkt á öllum þessum árum? Veit það ekki, en meðan svo er ekki verður þjóðin að taka til sinna ráða, meðal annars með söfnun. 

Mér finnst meira umhugsunarvert þegar auðmenn og fyrirtæki eru að gefa heilbrigðisstofnunum bráðnauðsynleg lækningartæki. Af hverju einfaldlega kaupir ríkissjóður (við) þessi tæki ekki? Ekki að góðgjörðir séu ekki vel þegnar og meintar.

Friðrik Þór Guðmundsson, 21.9.2008 kl. 02:18

6 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Sælir og takk fyrir innlitið og umræðuna. Ég er ekki sammála ykkur Valgeir og Friðrik um að ríkið ætti sjálfkrafa að styðja og halda upp þessum rannsóknum. Hins vegar finnst mér að ríkið eigi að efla rannsóknarsjóði sem hægt er að sækja í. Fyrir þessar sem og aðrar rannsóknir. 

Nú veit ég ekki hvort ég man rétt en getur verið að ríki felli niður hluta aðflutningsgjalda af tækjum sem keypt eru af góðgerðarsamtökum/fólki og gefin, en ef viðkomandi stofnun kaupir sömu tæki, borgar hún af þeim. Mig minnir að ég hafi átt í slíkum samræðum fyrir nokkrum árum. Kannski að einhver hafi upplýsingar um hvernig þessu er háttað.

Kristín Dýrfjörð, 21.9.2008 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband