Bloggfćrslur mánađarins, nóvember 2008

Fagnađarfundur leikskólakennara

Í ár eru 60 ár frá ţví ađ fyrstu leikskólakennararnir luku námi hérlendis, 20 ár frá ţví ađ viđ stofnuđum okkar eigiđ stéttarfélag (Ég tók ţátt í ţví), 12 ár frá ţví ađ námiđ fór á háskólastig, og í ár voru sett ný lög bćđi um leikskólann og menntun leikskólakennara, nú er gert ráđ fyrir ađ allir leikskólakennara ljúki meistaragráđu. Í tilefni alls ţessa og meira til stendur Félag leikskólakennara og RannUng fyrir ráđstefnum um starf leikskólakennara á morgun 1. desember. Fyrirlesarar eru allir starfsmenn og/eđa doktorsnemar viđ Menntavísindadeild Háskóla Íslands.  

Í tilefni ţessa skrifađi Ingibjörg Kristleifsdóttir greinarkorn, Ingibjörg sendi mér ţađ og fékk ég góđfúslegt leyfi hennar til ađ birta ţađhér.

„Ţađ besta er ekki börnunum of gott“

Ţetta sagđi Steingrímur Arason áriđ 1940 og vildi ađ ţetta yrđu einkunnarorđ Reykjavíkur ţví brýnt var  ađ bjarga börnunum í yfirstandandi,  kreppu, atvinnuleysi og heilsuleysi.  Steingrímur var frumkvöđull í  ţví ađ stofna leikskóla á Íslandi og leit á ţađ sem  „lífsnauđsyn ađ öđlast frelsiđ og máttinn og svala reynsluţorstanum á slíkum stađ en ekki á götunni“ eins og stóđ í  Barnadagsblađinu  áriđ 1937.

Núna er hlutverk leikskólans óumdeilanlegt. Hann er  ţjónusta viđ foreldra og  vinnumarkađinn, skjól ţar sem gott atlćti og öryggi er tryggt og ekki síst lćrdómssamfélag ţar sem umhverfi og skipulag miđast viđ ađ allir ţegnar ţess  geti öđlast uppbyggilega reynslu. Góđur leikskóli hefur ţroskandi áhrif á einstaklinga, fjölskyldulíf, vinnustađi og samfélagiđ allt í nútíđ og framtíđ. Í víđustu mynd er byggđur grunnur ađ lýđrćđi strax í leikskólanum ţar sem hver einstaklingur er gerandi og hefur áhrif  á  eigiđ líf í samfélagi viđ ađra. Ţađ  er lagaleg skylda leikskólans ađ búa börnum ţroskavćnlegt umhverfi ţar sem ţau fá notiđ bernsku sinnar  og  til ţess ađ uppfylla ţetta hafa leikskólakennarar unniđ ađ  ţví ađ ađeins ţađ besta sé í bođi fyrir börn.

„Ađ marka spor  er yfirskrift á ráđstefnu sem Félag leikskólakennara og RannUng halda 1.desember. .  Viđ fögnum ţví ađ starfsheitiđ leikskólakennari hefur fengiđ lögverndun. Viđ fögnum ţví ađ kennaramenntun verđur  efld sem ţýđir ţađ ađ rannsóknir munu  stóraukast.  Viđ fögnum ţví ađ 60 ár eru liđin frá ţví ađ fyrstu leikskólakennararnir útskrifuđust og  félagiđ okkar í núverandi mynd  er 20 ára. Um leiđ ţökkum viđ  fortíđinni,  frumkvöđlunum  okkar sem komu  leikskólanum  ţangađ sem hann  er  í dag.  Í dag 1.desember, skođum viđ hvar viđ stöndum og hvernig viđ getum tekiđ fleiri framfaraspor.

Fjórir af fimm fyrirlesurum ráđstefnunnar eru leikskólakennarar í doktorsnámi. Ţađ hefđi nú ţótt saga til nćsta bćjar fyrir 62   árum,  ţegar hnussađ var yfir ţví hvort ţessar stelpur ţyrftu nú ađ vera ađ mennta sig í uppeldi . Viđfangsefni ţeirra í doktorsnámi  er m.a. hlutverk og fagmennska kennarans. Dćmi um spurningar sem fyrirlesarar varpa fram er :: „Hvađ ţarf langt nám  til ađ verđa góđur leikskólakennari ?  Er fagmennska leikskólakennara stöđug eđa stöđugt ađ breytast ?

RannUng,  rannsóknarstofa í menntunarfrćđum ungra barna , var stofnuđ 15. maí 2007.  Á ţessum stutta tíma hefur miklu veriđ áorkađ í rannsóknum, fyrirlestrum, ráđstefnuhaldi og útgáfu á frćđiritum. RannUng er metnađarfull stofnun sem gefur fyrirheit umspennandi framtíđ .

Ţađ var ein af hugsjónum Selmu Dóru Ţorsteinsdóttur fyrrverandi formanns stéttafélags leikskólakennara ađ efla rannsóknir og ţróunarstarf í leikskólum. Ţegar Selma Dóra lést langt um aldur fram  áriđ 1993 var Rannsóknarsjóđur leikskóla stofnađur  í minningu hennar. Nú hefur veriđ ákveđiđ ađ fćra RannUng  ađ gjöf ţennan sjóđ ţar sem framganga RannUng gefur tilefni til ţess ađ ćtla ađ ţar verđi tilgangi sjóđsins best ţjónađ.

Tímarnir breytast og mennirnir međ en hugsjón Steingríms Arasonar er enn í fullu gildi:

En hvert er ţá stórmáliđ stćrsta ?

   Ađ styđja og bjarga hinu smćsta

                                                           Manngulliđ nema, móta, skýra.

   Í manndómsátt hverri hönd ađ stýra.

 

Njótum dagsins

 

Ingibjörg Kristleifsdóttir varaformađur Félags leikskólakennara


Eftirlaunafrumvarpiđ og sérgreiđslur til formanna stjórnarandstöđunnar

Nú á ađ "laga" eftirlaunafrumvarpiđ, vonandi fer í leiđinni út álagiđ fyrir formenn stjórnarandstöđunnar. Sú greiđsla var ađ mörgum talin vera mútufé á sínum tíma. Hafi veriđ gulrótin sem Össur og Steingrímur gleyptu viđ. Ef formenn flokka ţurfa ađ fá greitt fyrir ţađ ađ vera formenn ţá eiga viđkomandi flokkar ađ sjálfsögđu ađ standa undir ţví.  

 


Til lukku Austurbćjarskólabörn

Til hamingju krakkar í Austurbćjarskóla, ţetta er flott hjá ykkur. Sannarlega frábćrt framtak sem vert er ađ veita athygli. Sannarlega frétt sem á heima á forsíđu.

Ţađ er margt spennandi ađ gerast í skólum borgarinnar og já landsins alls, á öllum skólastigum. Ţar gerast daglega atburđir sem ćtti ađ halda á lofti, atburđir og pćlingar sem sem ćttu ađ rata á forsíđur og í fréttatíma. Sem ćttu ađ fá athygli ekki sem skreytiefni sem hćgt er ađ brosa fallega ađ, heldur vegna eigin gildis. Vegna ţess ađ ţetta eru fréttir um fólk á öllum aldri sem er ađ vinna merkileg störf.  


mbl.is Austurbćjarskóli vann Skrekk
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ćtlar hann aldrei ađ ţagna "karlskrattinn"?

Er Geir Hilmari lengur stćtt á ađ halda hlífđarskildi yfir vini sínum í seđlabankanum? Mađurinn heldur ađ hann sé enn í pólitík og hegđar sér samkvćmt ţví. Áttar mađurinn sig ekki á ţví ađ međ ţví hvernig hann sjálfur hefur hegđađ sér hefur hann skađađ ţessa ţjóđ, eins og ţeir sem hann nú ásakar.  

Annars minnir ţetta um margt á ţá ágćtu sögu, Úlfur, úlfur, og flestir vita hvers vegna ekki var hlustađ á vesalings drenginn loksins ţegar úlfurinn sýndi sig. 

Hef líka veriđ ađ hugsa um mál Baldurs ráđuneytisstjóra. Ţađ skiptir ekki lengur máli hvort hann vissi eitthvađ eđa ekki. Á hans hvítflippa hefur ekki bara falliđ kusk, heldur risastór skítaklessa og manninum ber sóma síns vegna ađ segja upp. Hvernig sem fer má hann vera nokkuđ viss um ađ fá uppsagnarbréf um leiđ og nćsti ráđherra fćr lyklavöld í fjármálaráđuneytinu. Ţađ vill enginn pólitíkus međ sjálfsvitund hafa slíkan farangur í lestinni.     


mbl.is Fjölmiđlar í heljargreipum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Vont ađ vera formađur án prédikunarstóls

"no", sagđi mađur mér vel kunnugur um daginn ţegar ţađ fréttist ađ Bjarni Harđar vćri búinn ađ segja af sér ţingmennsku, "noo, ţá verđur Jón Sigurđsson aftur formađur".  Guđni búinn ađ missa baklandiđ, og Valgerđur of umdeild, getur ekki ţvegiđ af sér sín störf. Ţađ reyndist rétt hjá karli ađ Guđni réđ ekki viđ ađ missa Bjarna af ţingi, en hinsvegar held ég ađ međ bráđri brottför sinni hafi hann skapađ Valgerđi ađstćđur sem duga henni jafnvel til formennsku. Ţađ er ekki líklegt ađ kallađ verđi í Jón sem er utan ţings, nema ef kosningar verđa bođađar mjög bráđlega. Ţađ er nefnilega vont og sennilega allt ađ ţví vonlaust ađ vera formađur án predikunarstóls.  En hvađ veit ég, gamlir ţulir hafa oft rétt fyrir sér og ţessi hefur haft ţađ sem hobby í áratugi ađ rýna í pólitík

Ţegar einar dyr lokast ...

Nýlega var vinkonu minni, sérfrćđingi í leikskólamálum sagt upp starfi sem leikskólarágjafi hjá borginni. Vinkona mín er reyndar međ mikla reynslu í breytingastjórnun, meistaraprófsverkefniđ hennar fjallađi um börn og áföll, en hún var ein ţeirra sem fór vestur á Flateyri strax í kjölfar snjóflóđsins til ađ koma leikskólanum ţar aftur af stađ. Vinkona mín byggđi upp leikskólakennaranám viđ Háskólann á Akureyri en ákvađ ađ láta af ţví starfi m.a. til ađ gerast leikskólaráđgjafi hjá Reykjavíkurborg. Hún hefur líka veriđ leikskólastjóri, verkefnastjóri í breytingarferli og fengist viđ ótal önnur störf innan leikskólans og utan.

Eitt af ţví sem Reykjarvíkurlistinn gerđi var ađ fćra ýmsa ţjónustu nćr borgurunum m.a. međ ţví ađ fćra ýmis störf út í ţjónustumiđstöđvar. Eitt ţađ fyrsta sem núverandi leikskólaráđ ákvađ, var ađ snúa ţeirri ákvörđun. Ţau lentu hinsvegar í smávandrćđum, stöđugildum leikskólaráđgjafa hafđi fjölgađ út í hverfum. Einungis 4 af 6 ráđgjafar fengu ţví störf hjá leikskólasviđi. Vinkonu minni sem er reyndar líka fyrrum formađur stéttarfélags leikskólakennara var reyndar bođiđ ađ hafa umsjón međ dagmćđrum, ţađ var taliđ sambćrileg starf viđ ađ vera faglegur ráđgjafi viđ leikskólastarf. Vinkona mín sem er afar metnađarfull fyrir hönd leikskólans taldi svo ekki vera og ţar fyrir utan fáránlegt ađ nota hennar yfirgripsmiklu sérfrćđiţekkingu á ţennan hátt. Hún afţakkađi ţví bođiđ pent og ákvađ ađ láta reyna á ţá lífskođun sína ađ ţegar einar dyr lokast, opnist ađrar.

Nýlega var auglýst útbođ í rekstur nýs leikskóla í Kópavogi. Vinkona mín ákvađ ađ sćkja um. Hún ákvađ ađ ţar vćri tćkifćri til ađ byggja upp, til ađ láta reyna á ţá ađferđafrćđi sem hún trúir á. En međal ţess sem hún hefur lagt stund á er nám í leikskólaráđgjöf og starfsmannaţróun í Stokkhólmi. Hún sá ađ ţarna hefđi hún tćkifćri til ađ koma hugmyndum sínum í verk og vinna á stađ ţar sem fjölbreytt reynsla hennar kemur ađ góđum notum. Á fimmtudag samţykkti Bćjarráđ Kópavogs ađ hún vćri einmitt manneskjan sem ţeir vildu ađ sći um rekstur nýja leikskólans. Ţar skaut hún aftur fyrir sig, Ariel ehf, Skólum ehf og Hjalla ehf sem öll sóttu um sama skóla.  

Ég óska vinkonu minni, Guđrúnu Öldu Harđardóttur til hamingju međ verkefniđ og hlakka til ađ fylgjast međ skólastarfinu á komandi árum. Leikskólastarf sem er rekiđ undir kjörorđunum, frumkvöđlar en ekki fylgjendur.


Sundsagan af Seltjarnarnesi saga grćđgisvćđingar

Ég hef fylgst međ fréttaflutningi DV af árekstrinum í sundlauginni á Seltjarnarnesi. Ţetta eru svona ekki fréttir sem eiga sennilega ađ hjálpa okkur til ađ hugsa um eitthvađ annađ en endalausa kreppu og efnahagsmál. En í hnotskurn er samt sundsagan saga uppgangstíma og grćđgisvćđingar samfélagsins.

Deilan gekk út á ađ tveir menn međ tvennskonar venjur mćttu í laugina. Annar er vanur ađ synda í O svo margir geti synt í sömu braut, heimamađurinn er vanur ţeirri venju ađ sá sem mćtir fyrstur í brautina á hana ţangađ til ađ hann hefur lokiđ sínu sundi. Annar er vanur ađ tekiđ sé tillit til fjöldans og ađ margir geti notiđ gćđanna, hinn ađ sitja ađ sínu og aldeilis ekki deila ţví međ öđrum.

Mér sýnist í hnotskurn ţetta vera lýsing á íslensku samfélagi síđustu ár. Ađ hugsa um eigin rass og hlađa sem mest undir hann hefur veriđ einkunnarorđ dagsins, stutt dyggilega af stjórnvöldum í formi eftirlitsleysis og slakra reglugerđa. Svo má náttúrulega hugsa til ţess ađ viđ erum ađ tala um sveitarfélag sem lengstum hefur veriđ eitt helsta virki frjálshyggjunnar á Íslandi, Seltjarnarnes. Ţar hefur frjálshyggjuhugsunin kannski líka náđi inn í sundlaug bćjarins.   


Af hverju ekki ađ fara í Bónus ef krónan er ómöguleg?

Ungur vinur minn er búinn ađ vera ađ velta fyrir sér hvers vegna allir séu svona vondir út í krónuna. Allir ađ tala um ađ hún sé handónýt og ómöguleg og tala bara svo illa um hana sagđi hann. Hann spurđi mömmu sína hvers vegna fólkiđ fćri ekki bara í Bónus ef ţađ er svona óánćgt međ Krónuna. 

Í ţessari litlu sögu kristallast e.t.v. hvađ börn eru ađ hugsa um umrćđuna. Fćst ţekkja ţau gjaldmiđilinn okkar undir krónuheitinu, ţau fá nefnilega fimmtíukall, hundrađ kall og jafnvel ţúsundkall. Krónuna heyra ţau flest nefnda í tengslum viđ tiltekna verslun.


Von fćđist

Ég vildi gjarnan vera í Chicago á ţessari stundu, vera niđri í bć ţar og vera ţátttakandi í ţví ćvintýri sem ţar á sér stađ. Ţađ var stórkostlegt ađ fá tćkifćri til ađ taka ţátt í kosningarfundi Obama í Colorado, finna á eigin skinni stemminguna. Međ mér var fólk sem sagist ekki hafa upplifađ slíka stemmingu frá ţví ađ Kennedy var í frambođi, sama fólk sagđist líka vera međ í maganum og hafa áhyggjur af öfgafólki.  

Einn ágćtur einkaleikskólastjóri og góđ vinkona mín sagđi mér ađ eldri fólk vćri í stórum stíl ađ fćrast frá McCain ţađ vissi hvađa orku og úthald ţađ hefđi sjálft og hvernig orkan fer dvínandi međ hverju ári (hún er sjálf fćdd 1943) og Palin skelfdi ţetta fólk. Svo hló hún á sinn einstak a hátt og  sagđist hafa sagt sínu starfsfólki ađ ef ţađ kysi ekki Obama ţá fengi ţađ ekki launahćkkun nćstu 10 árin. Held reyndar ađ hún hafi ekkert mikiđ ţurft ađ agitera.

Til hamingju heimur til hamingju Ameríka.


mbl.is Eftirvćnting í Chicago
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband