19.12.2007 | 01:16
Eyjófur að hressast
Svona lítur baktería út að mati sænskra leikskólabarna.
Ég er komin á breiðvirkandi sýklalyf, enda gafst ég upp fyrir veikindum mínum eftir enn eina svefnlausa hóstanótt og fór til læknis. Manneskjan með læknafóbíuna. Óþverrinn var kominn ofan í lungu og ekkert að gera nema leita á náðir Lyfju. Held náttúrulega að ef ég hefði nú tínt mín fjallgrös í sumar hefði ég náð þessu úr mér fyrr. En þegar ég eina andvökunóttina ætlaði að sjóða mér þann galdraseið, komst ég að því að koddaverið sem ég geymi grösin í var tómt. Kennir mér meiri fyrirhyggju næsta sumar. Vonast nú til að ná að klára það sem hefur beðið í meðvitundar og kraftleysi mínu. Svo ætla ég að fá frændur og vini í lægri kantinum í heimsókn annað kvöld, hlakka mikið til. Ætlum að gera eitthvað skemmtilegt saman og boða grjónavelling með mikið af rúsínum.
Sturlubarn er farinn að velta sér af maga á bak og ógurlega montinn þegar hann hefur afrekað það. Það er líka léttir að heyra að hann getur grátið aftur með hljóðum drengurinn. Unga fjölskyldan kom og leit á okkur gamalmennin áðan. Við borðuðum saman og þau horfðu á leik Totteham sem vann. Svo allir voða glaðir.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 01:25 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.