Túrverkir og megrun - einstaka fæðingar um það má ræða

Í gær skellti ég mér með í fámennið sem gekk undir fána Kenndarsambandsins.  “Jæja, hvað er rætt um pólitík á kaffistofunni?”, spurði ég leikskólakennara í göngunni. “Ekkert”, sagði hún. “Ekkert” hváði ég “nei, Það er bannað að ræða pólitík og kjaramál á kaffistofunni”.

Og furðar einhvern að fámennt hafi verið undir kennarafánanum.  

Hvaða kallavinnustaður mundi láta bjóða sér slíkt bann. Samkvæmt þessu má bara ræða túrverki, fæðingar, mataruppskriftir, megrun og partý. Ég vona innilega að það séu fáir leikskólar svona ólýðræðislegir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég myndi nú krefjast skýringa ef svona straff væri sett á mig. Hefur einhver yfirmaður leyfi til að taka af fólki málfrelsið á vinnustað?

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 20:41

2 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

ÞAð er víst svoo viðkvæmt og svo fer fólki að líða svo illa þegar umræðurnar verða fjörugar. Þetta er víst sett til að vernda þá sem ekki þola umræðuna, fara allar í hnút innan í sér og soleiðis. Svo náttúrulega getur hún líka skemmt móralinn, við verðum víst ekki allar nógu góðar vinkonur ef við förum að takast á um pólitík.

Mér finnst þetta reyndar forsjárhyggja á hæsta plani og ótrúleg frekja. Ég veit að fólk er misáhugasamt um pólitík, sumir eins og ég erum stundum dáldið híber en á móti þá getur fólk bara sleppt því að ræða við okkur. Ég er sko eignlega enn að jafna mig - skammaðist mín svo mikið fyrir hönd stéttarinnar að ég var álveg frá í gær að ákveða hvort ég ætti að blogga um þetta.

Kristín Dýrfjörð, 2.5.2007 kl. 21:03

3 identicon

Þetta er alveg hreint ótrúlegt - ég bara spyr hvernig getur fólk hugsað sér að vinna á vinnustað þar sem bannað að ræða kjaramál - hvers konar ofbeldi er þetta eiginlega?

kv Díana

Diana Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 22:35

4 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Sæl, og þið báðar, það er nú svo að margir eru bara fegnir svona banni, hafa þá ástæðu til að þurfa ekki að taka þátt í umræðu, losna við þessi leiðindi. Í kosningunum 2003 bjuggum við í Ameríkum ég skrapp aðeins heim fyrir kosningar og var að spyrja fólk um hitt og þetta sem ég upplifði af kosningarbaráttunni í gegn um netið.  Var spurð: eru enn að spá í þetta? þetta er svo óintresant og svo framvegis. Mig meira segja rekur minni til að hafa heyrt svipað áður, alla vega um að það ætti að banna svona umræður í kaffistofunni, hún ætti að vera svona political free zone. 'Sérstaklega þar sem eldheitt fólk væri. Það væri svo þvingandi að þurfa endalaust vera að ræða og jafnvel réttlæta pólitíkina. Held að það sama hafi stundum átt við um kjaramálin. Það er svo lítið gefandi að ræða þau.  

En hættan sem fylgir svona afstöðu er auðvitað líka mikil. Hvað með gagnrýna hugsun, hvað með að læra að hlusta á hvert annað og bera virðingu fyrir hvert öðru, hvernig eigum við að kenna börnum að læra að hlusta og bera virðingu fyrir skoðunum hvers annars en þora samtímis ekki að gera það sjálf, af því að það er svo óþægilegt. 

Í mínum huga er þetta svona eins og að taka þríhjólin úr garðinum af því að það er alltaf verið að rífast um þau. Með því að fjarlægja þau eru búið að gera út um vandamálið. En hvað læra börnin, hvernig förum við með þá sem eru vandamál, fjarlægjum þá. Í stað þess að líta á þau tækifæri sem felast í því að semja um hjólin, komast að sanngjarnir niðurstöðu, að nota þríhjólakrísuna til að styrkja lýðræði þá tökum við það úr umferð. Svona eins og við bönnum umræðu um pólitík í kaffistofunni.   

ps. Held nefnilega að svona "bann" sé ekki einsdæmi fyrir þennan leikskóla - held að þetta sé tíðkað á fleiri stöðum - kannski ekki eins opið en með því að það er gefið sterkt í skin að þetta sé óæskileg umræða. Er hluti af míkópólitík viðkomandi staða.

Kristín Dýrfjörð, 2.5.2007 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband