Veit félagi Össsur ekki að hann er ráðherra?

rós

 Félagi minn Össur fer mikinn á bloggsíðu sinni og flestum fréttatímum ljósvakamiðlanna. Mér er nú frekar vel við þennan flokksfélaga en verð að viðurkenna að honum hefur tekist að koma mér á óvart nokkuð reglulega undanfarna daga. Ég hef sumsagt verið að velta því fyrir mér hvort að félagi Össur viti ekki að hann er ráðherra. Mér finnst hann stundum tala eins og hann sé enn í stjórnarandstöðu. Mér fannst t.d. ekkert vit í því af ráðherra að láta nappa sig í að segja að fólk ætti að fá að beygja lögin af hentisemi vegna þess að veðrið sé gott. Hvað fyndist honum um að ég keyri yfir á rauðu af því að það er engin lögga viðstödd til að grípa mig og ég tel mig ekki skapa hættu fyrir samborgarana? Ef félagi Össur vildi hafa skoðun hefði ekki verið skynsamlegra að láta vita að hann ætlaði strax í haust að fara í að endurskoða þessa “vitlausu” reglugerð. Ég veit að félagi Össur er tilfinningavera. En mér fannst blogg hans um málefni Alejöndru vera á mörkum þess sem ráðherra skrifar. Ég hefði skilið það hefði það verið kammerrat Ögmundur.        

 

Í gamla daga þegar ég var enn í leikskólanum, báðum við stundum tilfinningarík og hvatvís börn að leggja eina reglu á minnið – og beita henni við flest tækifæri. Reglan var: Stoppa og hugsa. 

 

Man alltaf ungan félaga minn sem um sumt minnir á ráðherrann, skarpgreindur drengur, mikill náttúrusjarmör en ákaflega hvatvís. Eitt sinn þegar hann var á hraðleið til að gera eitthvað sem ekki var alveg æskilegt, verður mínum manni litið upp og sér mig. Hann lyftir vísifingri á loft og segir: “Stoppa og hugsa”, labbar nokkur skref afturábak og gekk svo rólega leiðar sinnar framhjá mér.  


Sjálfsdekur

Er enn að ástunda sjálfsdekur, vinkona mín segir mér að það nefnist hjá öðrum, að vera í sumarfríi. Í gær ákvað ég skreppa í Skeifu til mömmu. Tók slatta af myndum af mínum æskugarði. Garðurinn er rúmir 1200 fermetrar og allur í rækt. Hann er eins og vin, leyndur staður í miðri borg, með útsýni til allra átta. Niður á sundin blá, Esjan og fjallahringurinn, Bláfjöll og sjálfur Fossvogurinn sést heiman frá. Þar eru sitthvoru megin við húsið tvö falleg útivistarsvæði, leikssvæði okkar systkina. Annarsvegar Elliðaárdalurinn með ánni og hólmanum og hinumegin er Fossvogsdalurinn. Læt myndir úr garðinum fylgja með í albúmi hér við hlið.

 

Í garðinum tíndi ég upp í mig jarðaber úr jarðaberjareitnum og fékk svo guðdómlegar kartöflur með mér heim í soðið, beint undan grösunum.   


Eina skýringin - Íslendingar svona duglegir að kaupa

Getur það verið að Íslendingar séu svona góðir með sig að þeir bara kaupi ársmiða í hrönnum? Tryggja sig á þá leiki sem þeir hafa áhuga á og deilda svo miðanum á milli nokkurra. Sé fyrir mér nokkra hópa taka sig saman, svona eins og sumir eiga saman sumarhús á Spáni eða í Flórída. Verst að það var í fréttum að fermetraverð í London hefur hækkað upp úr öllu valdi, annar hefði verið hægt að bæta eins og einni vel staðsettri íbúð við kaupin.  

Nema þetta séu leyndir áhagendur Garðars Thors sem vilja tryggja sér að hlusta á kappann?

 

22.46 ps. Eftir að hafa rætt þetta við soninn yfir Brasilíu - Argentínu leiknum, fullyrðir hann að þetta sé traustsyfirlýsing stuðningsmanna um að þeir telji fjármál West Ham komin á grænan sjó.

 


mbl.is Metsala á ársmiðum hjá West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BráðNauðSynleg þekking á eigin SJÁLFI

Ég ákvað að taka svona hægri - vinstri heilapróf á netinu - sjá hvað það segði um mig. Ég hef löngum haldið því fram að ég sé með létt splittaðann persónuleika. Hef t.d. alltof mörg rannsóknar áhugamál, fer yfirleitt flóknustu leiðina, borða eins og örvhent en er rétthent (þess vegna veit ég aldrei hvernig á að leggja á borð - hnífurinn segir ekkert við mig). Nú skilja allir gestir sem hafa smekklega lagað veisluborðin hjá mér og látið lítið bera á, hvers vegna frúin leggur á borð eins og hún gerir. En samtímis fer í pirrurnar á mér ef bæði diskar og hnífapör nema ekki við boðbrún. Þess vegna lærðu drengirnir mínir dúkabrot snemma. og þess vegna er draslstuðulinn hár. Ég hef svo oft staðið á krossgötum og alveg eins getað hugsað mér að fara í hvaða átt sem er. Núna er ég búin að fá staðfestingu á þessu heilkenni mínu af ókeypis síðu á netinu. guð sé lof fyrir greiningar eheh.  Ef þið eruð orðin illa haldin forvitni, þá kom fram að:

you are Balanced-brained, which means that you rely equally on both the left and right hemispheres of your brain.

En þar er líka tekið fram að flestir eru annaðhvort hægri eða vinstra fólk - svo eru svona vandræðagripir eins og ég (held þetta eigi meira að segja við mig í pólitík). Ef við víkjum aðeins að persónueinkennum þessa fólks kemur fram að:

You are able to capitalize on the left hemisphere's skills in verbal communication as well on the right hemisphere's focus on patterns and association making. This rare combination makes you a very creative and flexible thinker.

Depending on the situation, you may rely on one hemisphere or the other. Some situations may lend themselves to using your right brain's creativity and flexibility while other situations may call for a more structured approach as dictated by your left brain.

That's how your brain processes information. And while your dominant brain hemisphere certainly contributes to the way you process information, there is also a styleof learning, unrelated to your dominant hemisphere, that determines the ways in which you are best able to pick up information. When you're learning something new, your dominant brain hemisphere will want to take over. But there are times when the information being presented is not well suited to your dominant hemisphere's abilities.

That's why, in addition to your hemispheric dominance, you also have a style of learning that is dominant for you. Whether you know it or not, you are naturally predisposed to learning things visually, aurally, or through a combination of the two.

Your test results show that you are an auditory learner. 

Og þarna kemur enn eitt lykilorð, læra í gegn um hlustun - (reyndar kom mér það ekkert á óvart) en nú skil ég betur hvers vegna mér reynist svo erfitt að koma hugsunum mínum í skrifaðan texta -það er af því að ég er kona hins talaða orðs
 

og svo til að þið lesið ykkur meira til um það -

Auditory learners tend to focus on auditory stimuli — things that they hear — when learning new information. They probably get a lot out of lecturesand are able to process speeches quickly and accurately. In fact, readings might not make as much sense to them until they've heard a supporting lecture to emphasize the written word and they're more likely to listen to a lecture first and then take notes once they've processed the information.

Auditory learners probably prefer to speak someone's phone number out loud to memorize it than bother with writing it on a piece of paper they're going to lose anyway. They remember things by repeating them and probably prefer hearing instructions instead of wading through a written set of rules and directions. Auditory learners are better at making their points through talking rather than writing. This isn't to say they don't ever rely on their eyes instead of their ears. Of course there are numerous instances, which call for them to do so. All this really means is that they're predisposed to learning through hearing. This in part is what makes most auditory learners strong communicators, adept at socializing and communicating in face-to-face situations.

About 30% of people are auditory learners.

Guð sé lof að ég er loksins búin að fá staðfestingu á þessu og get nú farið að taka tillit til þessara þátta við lífsskipulagið. Og nú get ég líka nýtt mér þessar upplýsingar til að ýta undir skilning samferðafólksins á mér.  


Eðlileg þróun - er það ekki?

Er þetta ekki bara allt gott og blessað - þeir sem eiga meiri peninga eiga að fá öðruvísi þjónustu og auðvitað betri úr sameiginlegum sjóðum. ÞAð er ekkert eðlilegra en að þeir fari fram fyrir á biðlistum á spítölum, þurfi ekki að bíða eftir vopnaleit á flugvöllum. Sérmeðferð í fangelsum fyrir "ríka" fanga hlýtur að vera eðlilegt næsta skerf ef við viljum hafa þannig samfélag. Aumingja litla París borgaði hvort eð er örugglega aukalega fyrir búningin og símann.

Á endanum er þetta alltaf spurning um prinsipp og þann vilja samfélagsins að allir séu jafnir fyrir lögum. Vona sannarlega að svona verði fréttir ekki úr okkar kerfi innan nokkurra ára -

Gulli Gutt sem dæmdur var til XX mánaða fangelsi fyrir innflutning á XX efnum, afplánar í lúxussvítunni á Hrauninu.   


mbl.is Stjörnufangavist París Hilton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég er skáldadrottning og brosi í gegn um tárin"

Þannig að hún grét fyrir myndavélarnar - ég var einmitt að pæla í hvers vegna hún þvoði sér ekki í framan áður en hún yfirgaf 5 stjörnu hótelið þar sem hún skrifaði síðasta kaflann með kampavíninu af míníbarnum. En samkvæmt fyrri fréttum yfirgaf hún herbergið með svartar rendur niður eftir kinnum. Þetta var sem sagt allt eitt allsherjar realityshow eða soleiðis.
mbl.is Heimildamynd um gerð Potterbóka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sambó og Lukka - aftur

Í síðasta bloggi fjallaði ég um bannaðar barnabækurnar, um svarta Sambó og hvítu Lukku. en herjar voru ástæður þess að Sambó var bönnuð og þótti svo meiðandi. Hvað þótti sérstaklega skaðlegt fyrir svört börn sem mörg kynntust barnabókum í fyrsta sinn í gegn um söguna af svarta Sambó. Jú bæði þóttu nöfnin á sögupersónum meiðandi en ekki síst voru það myndir höfundar sem þóttu minna á afskræmdar skrípamyndir af svörtu fólki. Myndir sem voru til þess fallnar að ýta undir staðmyndir. Hér að neðan geta svo lesendur geti sjálfir metið hversu meiðandi þær eru.  Jafnframt má finna frekari samanburð hér.

 

sambo6                                   lukka

 Berið saman líkamsburð í teikningunum af börnunum og fötin þeirra.

sambo mamma              squibba9mama

 Skoðið sama hér en líka aðstæður, hvað er mamma Sambós að gera og hvað mamma hennar Lukku að gera.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband