6.9.2007 | 12:43
BLÁAR TUNNUR
Á þessu heimili glöddumst við mjög þegar við heyrðum af því að borgin ætlaði að fara að dreifa bláum tunnum fyrir pappír. Ákváðum strax að panta eina slíka og láta fjarlægja eina svarta í leiðinni. Við hringdum og pöntuðum. Fengum þau svör að þetta tæki 3- 4 daga. Rúmri viku seinna var okkur tjáð að tunnurnar kæmu um mánaðarmót ágúst - september. Enn bólar ekkert á bláu tunnunum. Ég vona sannarlega að það sé vegna þess að það sé svona rosalega mikil eftirspurn og að starfsmenn borgarinnar séu að dreifa tunnunum í tugþúsundatali. Ég vona að áróður ýmissa frjálshyggjugaura hafi ekki haft þau áhrif að borgin hafi fengið bakþanka. Ég tel sorphirðu heyra til grundvallaþjónustu sveitarfélaga. Það að flokkun á sorpi sé einfölduð fyrir borgarbúa er hluti af nútímavæðingu og sennilega til sparaðar fyrir alla til lengri tíma. Hluti af ábyrgð samfélagins á endurnýtingu á takmörkuðum auðlindum.
31.8.2007 | 16:10
Móta fréttamenn eftir eigin höfði?????
Steingrímur sagðist hafa tekið við hópi fréttamanna sem hann vildi móta eftir sínu höfði og að það hafi verið ákveðið að gera breytingu á hópnum.
Þarf meira - fréttastjórinn talar hér um fréttamenn eins og leir (vona að það sé hægt að treysta fagmennsku moggans og þeir hafi haft rétt eftir manninum). Ég trúi því ekki að fólk með fagvitund vilji láta tala um sig á þennan hátt. Þóra Kristín hefur í mínum huga verið tákn fagmennsku, man fyrst eftir henni á prentmiðlunum fyrir langa löngu. Því miður fyrir nýja fréttastjórann er sjálfstæð hugsun og vinnubrögð eitt einkenna fagfólks líka á meðal fjölmiðlafólks.
![]() |
Steingrímur: Ekki pólitísk ástæða fyrir uppsögn Þóru Kristínar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.8.2007 | 15:02
Leikskólalýðræði og fermetrar
Síðustu vikur hef ég verið meira og minna á Akureyri, þar hef ég tekið þátt í málþingi um lýðræði í skólum, og svo norrænni vinarbæjarráðstefnu um leikskólamál. Á báðum fékk ég að koma skoðunum mínum framfæri. Á annarri um lýðræði og á hinni um hvernig m.a. leikskólabyggingar og skipulag getur stutt við lýðræði.
Fermetrar á barn í leikskólum voru mikið hitamál á meðal hinna íslensku leikskólakennarar. Enda þarf ekki mikla hugsun til að gera sér grein fyrir að á þeim þarf að taka. Það getur vel verið að á þeim tíma sem fermetrunum á barn í leikskóla var fækkað hafi það verið illnauðsynlegt til að koma á móts við þörf samfélagsins um að vistun fyrir sem flest börn. En nú er komið að endurskoðun. Við VERÐUM að breyta. Ef mið er tekið af því hversu langan dag flest íslensk börn eru í leikskólum, þá verða foreldrar og samfélagið að fara að gera kröfu á meira rými. Ég tel það af ýmsum ástæðum vera stórmál.
Ímyndið ykkur að venjulega heimilisstofu sem er um 35 fermetrar samkvæmt fermerarútreikningum þá mega vera í þessari stofu 12 börn allan daginn. Það er eins og að vera með barnaafmæli í stofunni hjá sér alla daga og hér er ekki gert ráð fyrir starfsfólkinu en væntanlega tekur það líka rými. Flestir leikskólar eru þannig byggðir að sameiginleg vinnurými barna eru tekin af þessum 3 fermetrum sem ætlaðir eru í leikrými, þannig má ætla að fjöldi barna í heimastofum sem eru jafnvel í kring um 40 45 fermetrar sé 20 24 börn stóran hluta dagsins. Kannski er ekkert skrýtið að fermetrar hvíli þungt á fólki við slíkar aðstæður. Þetta er umhverfi sem bíður upp á árekstrar og ýmis hljóðtengd vandamál.
Á ráðstefnunni tókst okkur að komast út úr þessari umræðu, fram komu hugmyndir fólks um framtíðarleikskólann. Flestir voru á því að miklu skipti að leikskólinn endurspeglaði hlýju en væri samt ekki heimilislegur. Þar á að vera fagurfræðilega fallegt umhverfi, sem styður við vinnubrögð í anda verkstæðisvinnu. Umhverfi sem styður við bæði samhjálp og sjálfstæði. Þar á að vera virkt lýðræði sem byggist á því að við eigum öll að gæta okkar minnstu systur og bróður.
Menntun og skóli | Breytt 5.12.2007 kl. 01:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.8.2007 | 01:09
Sultugerð
Nú er sá tími ársins sem ég stunda sultugerð af miklum móð, er þegar búin að sulta úr rabbabara, bláberjum, ylliberjum, rifsi og sólberjum. Og svo alla vega blöndur af ofangreindu. Nú vantar bara krækiberin og þá er ég held ég nokkuð vel sett fyrir öll vöffluboð vetrarins og gott betur. Á reyndar eftir að tína mér vetrarforða af fjallagrösum, en hef þegar tínt villisveppi til brúks. Ég verð að viðurkenna að ég á erfitt með að gera upp á milli árstíða, um hver er uppáhalds, þær færa svo mismunandi hlutverk og gjörðir með sér. Verst þykir mér að á þessum árstíma bíða mín svo mörg önnur verkefni og ég get því ekki gefið mig að fullu í sultugerðartilraunir, svona eins og ég sjálf kysi. Við meiri skoðun er það kannski bara hið besta mál.
Hvernig líst ykkur annars á blönduna:
Vínrabbabari
bláber,
sólber
hrásykur og vanillapasta?
Mæli svo með rifsi og ylliberjum saman. Kemur sérlega skemmtilega rammt bragð með því súrsæta.
18.8.2007 | 11:45
Til hamingju allar hetjur dagsins
.
Vöknuðum við það í morgun að fyrstu maraþonhlaupararnir voru ræstir, síðan hefur verið stanslaus gleði miðbænum. Lilló fór niður eftir rétt fyrir klukkan 10 þegar ræsa átti 10 kílómetra hlauparana. Ekki verður sagt að hann hafi verið eins sportlegur og þeir margir, enginn spandex galli, bara lummulegur gamall bolur og buxur. En hann kláraði. Og meira að segja á þeim tíma sem hann hafði reiknað með. Sagðist hafa gert þetta af skynsemi fremur en kappi. Ég beið við Lækjargötuna og mundaði myndarvélin, var nú mest hrædd um að lenda í því sama aftur og síðast, missa af honum. En guli bolurinn bjargaði því. Sá hann og náði mynd. Lilló ákvað að hlaupa til styrktar einhverfum, enda þekkjum við þá fötlun vel, bróðursonur hans, hann Spencer er nefnilega mikið einhverfur.
Til hamingju allir sigurvegarar, bæði formlegri og óformlegir. Ég dáist af ykkur öllum.
![]() |
Brautarmet í hálfmaraþoni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.8.2007 | 23:16
10 kílómetra hlauparinn sem móðgaðist við frúnna
Sennilega eru það tvö ár síðan Lilló ákvað að hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu síðast. Ég var nú dáldið áhyggjufull, hann hafði ekkert verið að hlaupa eða æfa sig fyrir það. Fékk bara svona hugdettu og skráði sig. Ég eins og góðri konu sæmir rölti niður í bæ svona hálftíma eftir ræsingu ætlaði að taka á móti mínum manni. Nema ég sé hann aldrei. Eftir um klukkutíma komu flestir í mark en ekkert bólaði á Lilló, svo leið tíminn og klukkutími og 20 mínútur, ég farin að hugsa, voða er hann lengi að þessu, klukkutími og 30 mínútur ég farin að hafa áhyggjur, hjólastólar, lasburða fólk og gamalmenni voru komin í mark, fólk með barnavagna var komið í mark en ekkert bólaði á Lilló og liðið vel á annan tímann. Ég farin að hafa alvarlegar áhyggjur um að eitthvað hefði komið fyrir í hlaupinu, hann hnigið niður eða bara eitthvað, ætlað að fara heim sækja bílinn, keyra meðfram hlaupabrautinni. Heyra í höfuðstöðvum hlaupsins hvort einhver hefði verið fluttur á spítala. Búin að búa mér til allavega áhyggjur í kollinum. Þá heyri ég galað yfir Lækjargötuna, Kristín hvar ertu búin að vera? Þarna stóð Lilló segir mér að hann sé búin að fara heim í sturtu, fá sér sígarettu og kaffibolla. Skyldi ekkert hvar ég var. Hann varð eiginlega móðgaður að ég stæði þarna enn. Að ég tryði því að hann væri uppundir tvo tíma með hlaupið. Núna ætlar hann að endurtaka leikinn með sama undirbúning og síðast.
16.8.2007 | 15:15
Hvað vantar marga í dag??
Samt veit ég ekkert starf skemmtilegra, og kannski er ég að vinna það starf sem kemst næst því, við að mennta verðandi leikskólakennara.
![]() |
Eiga laun leikskólakennara að vera hærri? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |