Sultugerð

Nú er sá tími ársins sem ég stunda sultugerð af miklum móð, er þegar búin að sulta úr rabbabara, bláberjum, ylliberjum, rifsi og sólberjum. Og svo alla vega blöndur af ofangreindu. Nú vantar bara krækiberin og þá er ég held ég nokkuð vel sett fyrir öll vöffluboð vetrarins og gott betur. Á reyndar eftir að tína mér vetrarforða af fjallagrösum, en hef þegar tínt villisveppi til brúks. Ég verð að viðurkenna að ég á erfitt með að gera upp á milli árstíða, um hver er uppáhalds, þær færa svo mismunandi hlutverk og gjörðir með sér. Verst þykir mér að á þessum árstíma bíða mín svo mörg önnur verkefni og ég get því ekki gefið mig að fullu í sultugerðartilraunir, svona eins og ég sjálf kysi. Við meiri skoðun er það kannski bara hið besta mál.

Hvernig líst ykkur annars á blönduna:

Vínrabbabari

bláber,

sólber

hrásykur og vanillapasta?

Mæli svo með rifsi og ylliberjum saman. Kemur sérlega skemmtilega rammt bragð með því súrsæta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Þú varst nú ekki  nein "sultugerðtýpa" hér áður fyrr  - en þetta er hið besta mál. Mæli með sultugerð sem góðri slökunarðaferð - hinsvegar á ég enn krukkur frá 1996 sem ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við ? Líklega ekki meðmæli - ha?

Valgerður Halldórsdóttir, 21.8.2007 kl. 20:42

2 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Bakaðir þú vöfflur á menningarnótt?

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 21.8.2007 kl. 23:22

3 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Sæl Valgerður - rétt þegar ég var ung eldaði ég bara baunarétti og sauð hrísgrjónagraut úr hýðishrísgrjónum, hvítur sykur var ekkert ofarlega á dagskrá. Með aldrinum færðist ég í átt til hvítra grjóna og jafnvel um tíma til þeirrar gerðar sem maður kaupir í poka og skellir út í vatn. Nú er aftur komin tími hýðisgrjóna og hægrar matreiðslu, en núna leyfi ég svona oggu magni að sykri að fljóta með - nefnilega alveg hægt að nota hrásykur í sultur.

og Ingólfur á menningarnótt - duttu inn gestir og ég ákvað í anda hægrar eldamennsku að leggjast í pasta og brauðgerð -með salati úr matjuratgarði hússins svo engar vöfflur þar. Þær bíða kaldra vetrardaga, þegar slagveðursrigning og kuldi herjar á okkur.

Kristín Dýrfjörð, 22.8.2007 kl. 11:31

4 identicon

Dugleg stelpa ertu!

Kristbjörg Clausen (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 22:06

5 identicon

Hvað eru ylliber?

Þorsteinn Ingimarsson (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 10:51

6 identicon

Mæli með sultunum hennar Kristínar, uummmmm, hlakka til að koma og fá vöfflur með sultu og rjóma.

Sigríður Síta (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 11:23

7 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Þorsteinn: Ylliber eru rauð ber sem vaxa á trjám, eru víða í görðum, skal taka mynd og setja inn við tækifæri.

Og Síta ávallt velkomin.

Kristín Dýrfjörð, 28.8.2007 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband