Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
108 Reykjavík
Sæl Kristín, rakst á pistil eftir þig um lífið í Blesugróf og deildi á facebook síðuna "108 Reykjavík". Skemmtilegur pistill og við erum að safna saman, að gamni, gömlum og nýjum fréttum úr hverfinu okkar góða. Þú lætur mig bara vita ef þú vilt að við tökum þetta út. bestu kveðjur, Lena Lenharðsdóttir
Lena Lenharðsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 25. júní 2012
Fyrirspurn !
Sæl Kristín, ert þú fróð um Steingrím læknir sem starfaði í Siglufirði,Sveinn á Kálfsskinni í eyjafirði ar að taka saman efni um hann. Kv. Sveinn Þorsteinsson Siglufirði. svennith@simnet.is
Sveinn Þorsteinsson (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 25. nóv. 2010
Hláturjóga á Menntafundinum?
Sæl Kristín, Ég tók þátt í þjóðfundi um menntamál síðasta vetur og langar að hafa uppá konunni sem stýrði hláturjóga. Finn ekki nafnið hennar svona við fyrstu leit, geturðu frætt mig á því hvernig ég næ sambandi við hana? Kv. Helgi þór helgi.thor.jonsson@gmail.com
Helgi Þór (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 14. sept. 2010
Ætlar hann aldrei að þagna "karlskrattinn"?
Kristín, þetta er auðvitað nokkuð sem þarf að tryggja að verði þaggað niður. Það er alveg ómögulegt að upplýst sé um að Baugur skuldi hér eitt þúsund milljónir; það er bæði smámynt og í góðum höndum. Og líka að bankaráðherrann hafi verið varaður við meðan hægt var að bjarga hlutunum. Verðum við ekki að treysta því að kratar og Stöð2, í sameiningu, geti þaggað niður í manninum? Einar S. Hálfdánarson
Einar S. Hálfdánarson (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 18. nóv. 2008
list fyrir yngstu börnin á leikskólanum
Sæl Kristín. Sigríður Helga Sigurðardóttir heiti ég og er fyrverandi nemi hjá þér. Ég er deildarstjóri á deild sem er með börn á aldrinum 6 mánaða til 18 mánaða. Mig langðai til að ath hvort að þú vissir um einhverja vefi eða bækur um listsköpun/ hugmyndir fyrir þennann aldur. Allt er vel þegið. Bestu kveðjur Sigríður Helga Barnabæ Blönduósi
Sigríður Helga Sigurðardóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 21. okt. 2008
ReMida og vísindasmiðjur
Sæl Kristín. Ég heiti Sigurlína og er leikskólafulltrúi í Ísafjarðarbæ. Ég var reyndar búin að senda þér tölvupóst, en veit ekki hvort að hann hafi skilað sér. Við hér höfum áhuga á á kynna fyrir leikskólastarfsmönnum okkar þessa vinnu á námskeiðsdegi í haust, og mér var bent á að hafa sambandi við vegna þess. Gott væri að heyra í þér, en netfagnið mitt er leikskolafulltrúi@isafjordur.is og síminn er 450 8000. Með kveðju frá Ísafirði Sigurlína
Sigurlína Jónasdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 9. júní 2008
megið nýta ykkur bloggið að vild
Sælar megið nota það sem er á blogginu eins og þið viljið. Hef nú ekki skrifað neitt sem hefur birst opinberlega um krullubörn (hafði reyndar aldrei heyrt þeirra getið fyrr en í Stokkhólmi) né heldur SMT og PMT - hef hinsvegar verið að huga að greinarsmíð um það mál. kveðja Kristín
Kristín Dýrfjörð, mið. 9. apr. 2008
Langar til að lesa eldri skrif þín hérna :)
Sæl Kristín. Ég var að heyra af áhugaverðum skrifum þínum hérna. Mig langar t.d. til að lesa skrif þín um SMT/PMT og eins um Krullubörn. Hvar finn ég þau skrif? bestu kv. María K. leikskólakennari
María Kristjánsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 9. apr. 2008
Ég bara verð að "kommentera" meira á síðuna sína Kristín:)
Sæl aftur. Ég hef lesið meira af efninu þínu síðan ég skrifaði þér áðan. Ég er svo hrifin af því sem ég les að ég má til með að spyrja þig: Má ég prenta sumt af því em þú skrifar fyrir samstarfskonur mínar að lesa? Ég veit að ég er aldeilis ekki ein um að hafa bæði gagn og gaman að þessum lestri. Og er um leið innilega sammála þér um margt sem þú nefnir, eins og t.d. Hávaðann á leikskólum, barnafjölda á deild, (hef verið á 35 barna deild heilan vetur og lifði það af!), og líka þetta með krullubörnin....hahahah, frábær lesning! Í öllum bænum, ekki hætta þessum skrifum. Kær kveðja,
Linda Samsonar Gísladóttir, fös. 4. apr. 2008
Sæll frændi
Gaman að rekast á frændur sína og þetta sýnir hvað við Dýrfjörðar þekkjust lítið þó fá séum, en afi þinn Holli er sem sagt föðurbróður minn. lít á vefinn þinn við tækifæri, kveðja Kristín
Kristín Dýrfjörð, þri. 24. apr. 2007
Sæl frænka
Sæl Kristín, Alltaf gaman þegar maður rekst á einhvern Dýrfjörð ættingja á netinu, og hvað þá að vera fyrstur að kvitta í gestabókina :) Ég er sem sagt sonur Kristjáns Dýrfjörð sem er sonur Hólms Dýrfjörð frá Siglufirði. Endilega kynntu þér viðskiptin sem frændi þinn er með : www.photodog.biz kv. Haukur Örn Dýrfjörð http://www.photodog.biz
Haukur Örn Dýrfjörð (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 24. apr. 2007