21.7.2008 | 23:40
Hættur þess að drekka kók læt
Í fyrrakvöld skrapp ég út í sjoppu. Þar er líka vídeóleiga, strákurinn í afgreiðslunni fór þegar að spyrja mig hvort ég hafi séð hina eða þessa myndina. Þessi er rosagóð. Góðir leikarar í þessari. En þessi heldurðu að þú viljir sjá hana. Á endanum læt ég tilleiðast og tek eina, skila henni reyndar óséðri. Svo kom að meðlætinu, "ég ætla að fá tvo lítra af kók læt" segi ég. "Ertu viss um að þú viljir ekki venjulegt kók, það er miklu hollara". "Já" segi ég "ætla að hafa það læt" "En veistu ekki að þýskir vísindamenn er búnir að rannsaka og sanna að það er óhollara að drekka kók læt með fullt af gerviefnum en að vera í New York í viku". Ég horfi alvarlega (en glottandi inn í mér) framan í piltinn og segi." Já en það er tölfræðilega ekkert hættulegt að búa í New York í viku." "Viltu kvittun?"
Mundi eftir þessu þegar ég las um hættur þess að búa í Reykjavík.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Leikskólakennari, fyrrum leikskólastjóri, lektor við Háskólann á Akureyri, áhugamanneskja um málefni tengd leikskólanum í sinni víðustu mynd. Blogg sem eru sérstaklega um faglega hlið leikskólastarfs er að finna á www.leikskolabanki.blog.is
Efni
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 358774
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
fyrirlestrar og ritgerðir
- Fyrirlestur um ytra mat Fluttur á ráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga 6. október 2008
- Fyrirlestur - Hvert barn er sinn eigin kór Fyrirlestur fluttur á ráðstefnu Reykjavíkurborgar og RannUng þann 18. apríl 2008
- MA ritgerðin mín Hér má finna ritgerð mína um matsfræði
- (gömul) Rannsókn um viðhorf leikskólakennar til starfsins rannsókn sem gerð var fyrir um tæpum 15árum
- ritgerð um lýðræði og leikskólastefnur
- Leikskóli og trú - skýrsla
Frumkvöðlar
Umræða um leikskóla - mitt blogg
eldri blogg um leikskólamál,skýrslur og greinar
- Vald til breytinga
- Leikskólinn sumargjöf til barna
- leikskólinn fátækragildra kvenna
- Fjölbreytileiki og fjölmenning
- Hávaði í leikskólum
- Funaborg
- Kjarklaust fórnarlamb
- Fagrabrekka og Reggio
- dagur á Iðavelli
- listir og eðilsfræði í leikskólum
- skólaföt
- Skráning (dönsk)
- Leikskólinn pólitískur
- Hönnun leikskóla
- ógn þöggunar
- hræðslan og sjálfsmyndin
- kynjauppeldi?
- Arkitektúr og leikskólar
Sturlubarnið
- Valdagreining Sturlubarnsins
- Sturlubarnið KRingur
- Fyrsti dagurinn í leikskólanum
- Lj´somyndaáhug Sturlubarnsins og sitthvað fleira
- Sturlubarn í húsdýragarðinum
- Sturlubarnið sullar á Íngólfstorgi og skoðar bækur
- Sturla 1. árs
- Sturla, ferð á tjörn og Stöðlakot
- Heimsókn til ömmu og afa í Skeifu
- Að æfa sig á þroskabrautinni
Bloggvinir
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Bergljót B Guðmundsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Fríða Eyland
- Hörður Svavarsson
- Ingibjörg Margrét
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Valgerður Halldórsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- Bergljót Hreinsdóttir
- Margrét Einarsdóttir Long
- Benedikt Sigurðarson
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Páll Helgi Hannesson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Arna Lára Jónsdóttir
- Björgvin Gunnarsson
- Hlekkur
- Þingmaður
- Ásgerður
- Þóra Guðmundsdóttir
- Steingrímur Ólafsson
- svarta
- Halla Rut
- Sigríður Jónsdóttir
- Gunnar Axel Axelsson
- Gísli Tryggvason
- SVB
- Arnar Ingvarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- cakedecoideas
- Dóra
- Elín Erna Steinarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Himmalingur
- Hinrik Þór Svavarsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morten Lange
- Stella Jórunn A Levy
- Þórhildur og Kristín
Athugasemdir
Ég held að það sé mikið til í því að aspartam sé óhollt og ég reyni að forðast það. Aspartam kallar líka fram hungurtilfinningu. Þetta efni er komið í flest tyggjó og sumt sælgæti og er í fleiri og fleiri mjólkurvörum.
Sigríður Þórarinsdóttir, 22.7.2008 kl. 00:27
Góð
Svava Björg Mörk (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 09:39
Það vita flestir að aspartam er ekki hollusta, líka ég, en sykur getur líka verið hættulegur sérstaklega ef viðkomandi býr við skert sykurþol. Best auðvitað að sleppa báðu en...
Kristín Dýrfjörð, 22.7.2008 kl. 11:35
En hvað kostaði svo flaskan ? Ég hef alltaf litið svo á að það væru bara auðkýfingar og öryrkjar sem keyptu gos í sjoppum. Eftir því sem ég best veit ert þú hvorugt, eða ertu kannski auðkýfingur?.
Briet (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 11:52
Sæl Briet, hún kostaði heilar 290 krónur í sjoppunni, en ég er löngu búin að reikna út hvað það kostar mig að fara í Bónus, allt of mikið, mér hættir nefnilega til að kaupa allt mögulegt sem ég hef enga þörf fyrir í svoleiðis búðum. En þegar ég fer til kaupmannsins á horninu eða í sjoppuna á horninu, kaupi ég það sem ég fór til að kaupa og ekki meir. Sem sagt in til langs tíma litið, ekkert bruðl + til þess nota ég tvo jafnfljóta en annars bílinn.
Kristín Dýrfjörð, 22.7.2008 kl. 12:29
ps. nú skilurðu af hverju öryrkjarnir versla við sjoppur og líka auðkýfingar, þó svo ég tilheyri hvorugum hópnum, heldur hópi hinna hagsýnu húsmæðra.
Kristín Dýrfjörð, 22.7.2008 kl. 12:32
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 22.7.2008 kl. 13:50
Þessi afgreiðslumaður hefur bæði haft þjónustulund og almannaheill að leiðarljósi . Margt verra en það
Beturvitringur, 22.7.2008 kl. 14:20
Mér fannst og finnst hann alveg frábær. Sá sami og þegar ég ætlaði að kaupa kaffi og wc pappír eitt sinn (það var búið að loka hjá kaupmanninum á horninu) bauðst til að gefa mér eina rúllu, þeir eru nefnilega hættir að selja wc pappír og kaffi.
Kristín Dýrfjörð, 22.7.2008 kl. 15:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.