Söngvakeppni framhaldsskóla og lýðræðisdagur

Á morgun ætla framhaldsskólarnir að takast á í söng og hljómsveitarleik á Akureyri. Sá áðan í Kstljósinu eitt minna "gömlu barna" hita raddböndin. Það er hann Dagur sem er í FÁ, sem eitt sinn var leikskólabarn í Ásborginni. Ekkert breyst drengurinn. Og af því að mér er hlýtt til allra minna gömlu barna óska ég honum góðs gengis.

Á morgun er líka íbúðarþing um lýðræði á Akureyri. Ég hlustaði á menntskælinginn Jan minna okkur á að það geta og eiga ekki allir að verða keppnismenn í íþróttum. Ef það er stefnan missa þær nokkuð af forvarnargildi sínu. Góð áminning.

Annars er dagskráin svona:

Thu_og_eg_og_AkureyriÍbúalýðræði
Framsaga: Ágúst Þór Árnason
Umræðustjóri: Margrét Guðjónsdóttir

Mengun, umferð og lýðheilsa
Framsaga: Pétur Halldórsson
Umræðustjóri: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir

Göngu- og hjólreiðastígar
Framsaga: Guðmundur Haukur Sigurðarson
Umræðustjóri: Inga Þöll Þórgnýsdóttir

Lýðheilsa og skipulag
Framsaga: Matthildur Elmarsdóttir
Umræðustjóri: Karl Guðmundsson

Hæglætisbær eða heimsborgarbragur?
Framsaga: Hólmkell Hreinsson
Umræðustjóri: Katrín Björg Ríkarðsdóttir

Vistvernd í verki. Allra hagur.
Framsaga: Stella Árnadóttir
Umræðustjóri: Gunnar Gíslason

Að eldast á Akureyri.
Framsaga: Sigrún Sveinbjörnsdóttir
Umræðustjóri: Þórgnýr Dýrfjörð

Akureyri – fjölskylduvænt samfélag.
Framsaga: Jan Eric Jessen
Umræðustjóri: Sigríður Stefánsdóttir

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sjáumst á morgun. Ég ætla hugsanlega að "eldast á Akureyri" er það nokkuð kokkanámskeið?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 20:42

2 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

heheh, veit ekki hvort frændi minn og/eða samkennari eru góðir kokkar og alls ekki hvort að þau eru snillingar í norðlenskri eldamennsku. Sjálf ætla ég að hitta mínar skólasystur í Reykjavík á morgun og ekki að vera á Akureyri.

Kristín Dýrfjörð, 11.4.2008 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband