25.7.2007 | 01:54
Að velja sér grafskrift
Sumt sem maður gerir er endanlegra en annað, eitt af því er að velja sér grafarskrift og legstein. Hvorutveggja nokkuð sem við Lilló ætluðum að gera í sumar, fyrrasumar og sumarið þar áður. Enn erum við ekki búin að því. Finnum okkur ýmislegt til dundurs annað en að heimsækja steinsmiðjur. Í grófum dráttum erum við búin að ákveða hvernig steininn á að vera. En það að panta hann, leggja inn nöfnin og koma honum fyrir á leiðinu er svo endanlegt og erfitt. Einhvern vegin er þetta meira en að velja sér sófasett, eða nýjan bíl. Þessi steinn verður yfir okkur, jafnvel í hundruð ára. En þangað til verður hann yfir Sturlu okkar, afa hans og langafa svo lengi sem við lifum. Hann er merki um forgengnileika lífsins. Áminningu um að hvert líf sem er lifað verður að vera í núinu. Að við verðum að varðveita og fagna minningum okkar, hversu sárar sem þær kunna að vera. En líka áminning um að okkur ber skylda til að stuðla að mögulega ríkulegri úttekt úr minningarbankanum seinna. Það gerum við með því að verja tíma með þeim sem okkur þykir vænt um.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Leikskólakennari, fyrrum leikskólastjóri, lektor við Háskólann á Akureyri, áhugamanneskja um málefni tengd leikskólanum í sinni víðustu mynd. Blogg sem eru sérstaklega um faglega hlið leikskólastarfs er að finna á www.leikskolabanki.blog.is
Efni
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 358774
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
fyrirlestrar og ritgerðir
- Fyrirlestur um ytra mat Fluttur á ráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga 6. október 2008
- Fyrirlestur - Hvert barn er sinn eigin kór Fyrirlestur fluttur á ráðstefnu Reykjavíkurborgar og RannUng þann 18. apríl 2008
- MA ritgerðin mín Hér má finna ritgerð mína um matsfræði
- (gömul) Rannsókn um viðhorf leikskólakennar til starfsins rannsókn sem gerð var fyrir um tæpum 15árum
- ritgerð um lýðræði og leikskólastefnur
- Leikskóli og trú - skýrsla
Frumkvöðlar
Umræða um leikskóla - mitt blogg
eldri blogg um leikskólamál,skýrslur og greinar
- Vald til breytinga
- Leikskólinn sumargjöf til barna
- leikskólinn fátækragildra kvenna
- Fjölbreytileiki og fjölmenning
- Hávaði í leikskólum
- Funaborg
- Kjarklaust fórnarlamb
- Fagrabrekka og Reggio
- dagur á Iðavelli
- listir og eðilsfræði í leikskólum
- skólaföt
- Skráning (dönsk)
- Leikskólinn pólitískur
- Hönnun leikskóla
- ógn þöggunar
- hræðslan og sjálfsmyndin
- kynjauppeldi?
- Arkitektúr og leikskólar
Sturlubarnið
- Valdagreining Sturlubarnsins
- Sturlubarnið KRingur
- Fyrsti dagurinn í leikskólanum
- Lj´somyndaáhug Sturlubarnsins og sitthvað fleira
- Sturlubarn í húsdýragarðinum
- Sturlubarnið sullar á Íngólfstorgi og skoðar bækur
- Sturla 1. árs
- Sturla, ferð á tjörn og Stöðlakot
- Heimsókn til ömmu og afa í Skeifu
- Að æfa sig á þroskabrautinni
Bloggvinir
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Bergljót B Guðmundsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Fríða Eyland
- Hörður Svavarsson
- Ingibjörg Margrét
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Valgerður Halldórsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- Bergljót Hreinsdóttir
- Margrét Einarsdóttir Long
- Benedikt Sigurðarson
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Páll Helgi Hannesson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Arna Lára Jónsdóttir
- Björgvin Gunnarsson
- Hlekkur
- Þingmaður
- Ásgerður
- Þóra Guðmundsdóttir
- Steingrímur Ólafsson
- svarta
- Halla Rut
- Sigríður Jónsdóttir
- Gunnar Axel Axelsson
- Gísli Tryggvason
- SVB
- Arnar Ingvarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- cakedecoideas
- Dóra
- Elín Erna Steinarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Himmalingur
- Hinrik Þór Svavarsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morten Lange
- Stella Jórunn A Levy
- Þórhildur og Kristín
Athugasemdir
hmmm , má þetta ekki vera bara nafnspjald á vegg? það fer að vísu dálítið eftir því hvort maður trúir á að það sé eitthvað eftir dauðann
Þorsteinn Ingimarsson (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 11:30
Afi minn trúði á líf eftir dauðann, en hann trúði því líka að það versta sem fyrir hann gæti komið í nýja lífinu væri að fólk væri endalaust að kalla hann til sín, að þeim líkama sem væri laus við. Hann lét því brenna sig og hvílir í ómerktri gröf. reyndar er það svo að núna er fljótlegt að fletta upp númerinu með því að fara inn á garður.is - hef gert það einu sinni - fann leiðið hans eftir mikla leit og er nokkurvegin líka búin að gleyma því núna.
Hvort líf er eftir dauðann er eitthvað sem ég hef ekki minnstu hugmynd um. En kannski er það þegar að leiðið er barnsins þíns viltu samt að það sé fallegt og líka grafskriftin - en hún verður líka að vera viðeigandi fyrir hina sem þar eru.
Kristín Dýrfjörð, 25.7.2007 kl. 22:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.