1.5.2007 | 20:36
Bræðrabönd
Sé að sjálfstæðismönnum og líka framsókn svíður undan Skúla. Vitna í Geir sem á að hafa neitað ég heyrði ekki betur en hann segði, að svo stöddu. Að svo stöddu þýðir, seinna. Hvenær þetta seinna er, það er annað mál. Glitnir á hlut í Geysir Green Energy með Fl group og fleirum. Til þess að vinna að hlut bankans í endurnýtanlegri orku réð bankinn til sín Árna Magnússon, fyrrum félagsmálaráðherra "sem gat ekki sleppt þessu gullna tækifæri sem barst honum upp í hendur" og nú er bróðir hans Páll orðin stjórnarformaður Landsvirkjunar. Þarf fleiri vitna við. Búið að tryggja helmingaskiptin einu sinnu enn.
úr viðtali við Árna - komin i fang bankans.
Sunnudaginn 12. mars, 2006 - Innlent - greinar
Að sjá daginn verða til viðtal við Árna Magnússon fyrrum ráðherra
Óábyrgt að horfa ekki til framtíðar í nýtingu jarðhita og vatnsorku
Íslendingar eiga mikla auðlind sem er jarðhiti og vatnsorka og mikilvægt er að nýta með skynsamlegum hætti og á réttum tíma. Í mínum huga væri óábyrgt að horfa ekki til framtíðar með nýtingu þessarar auðlindar. Samfélag í örum vexti þarf sífellt á nýjum tækifærum að halda og þau verða ekki til á einni nóttu.
... Allir vita þó að tilteknir aðilar hafa náð meiri árangri en aðrir og eru orðnir moldríkir - en er það nýtt? Má ekki sjá svipaða þróun þegar litið er dálítið aftur í tímann?
Segir að byrjað sé að undirbúa sölu Landsvirkjunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.