Bloggfærslur mánaðarins, október 2009
31.10.2009 | 12:38
Virðing og lýðræði - þjóðfundur
Hugtök sem eru ákaflega mikilvæg öllum sem starfa með yngstu borgurunum. Í raun má segja að þetta séu grunnhugtök alls starfs með börnum. Í hverju felst að virðing í starfi með börnum? Virðing fyrir skoðunum barna, virðing fyrir fjölskyldulífi þeirra, virðing fyrir tíma þeirra, rými og verkum eru á meðal þátt sem hægt er að nefna. Ég er sannfærð um að til að skólar geti sagst vinna á lýðræðisgrunni verði allt starf þeirra að vera gegnsýrt virðingu. Þess vegna getur virðing ekki verið einkamál skóla. Hún er grundvallaratriði í lífi hverrar manneskju. Það sem við viljum öll upplifa. Að virðing sé borin fyrir okkur.
Að hlusta og rökræða
Í leikskólum verðum við að vera tilbúin til að hlusta og rökræða við börnin. Það er að segja ef við í raun ætlum að sýna þeim virðingu. Við verðum að vera tilbúin til að hafa skoðanaskipti við þau. Hvernig á barn annars að læra að ígrunda og standa með sjálfu sér, ef aldrei er rætt við það. Hvernig á barn að geta þroskað hæfileika sína til að hugsa ef við hugsum helst allt fyrir það. Ef við veljum alla kosti fyrir það. Eða setjum þeim svo afmarkaða kosti að þeir krefjast ekki ígrundunnar
Þjóðfundurinn
Hvers vegna vel ég að ræða þetta hér og nú? Það er vegna þess að ég tel að hugmyndin um Þjóðfundinn sem halda á í Laugardagshöllinni þann 14. nóvember byggist á þessum sömu gildum og við viljum hafa í heiðri í starfi með börnum. Hugmyndin byggist á að til að vera þátttakandi í endurreisn samfélagsins verði að veita þjóðinni tækifæri til að bera ábyrgð á mögulegum lausnunum. Með Þjóðfundinum fáum við tækifæri til að hugsa saman fram til nýrra hugmynda, til þess að gera upp hvað það er sem skiptir okkur öll máli. Hvaða gildi, hvernig samfélag við viljum skila áfram til barna okkar og barnabarna. Kannski er það svo að Þjóðfundurinn er þegar upp er staðið, fyrst og fremst fyrir börnin okkar og barnabörn. Með honum fáum við tækifæri til að sýna þeim virðingu í verki. Ég vona innilega að börnin okkar fái sömu möguleika og ég fékk, til að tilheyra og til að hafa áhrif á umhverfi mitt, að gæfa mín verði líka gæfa þeirra.
Birt í Morgunblaðinu þann 31. október 2009
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2009 | 14:53
Þjóðarspegill - þátttökuaðlögun
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2009 | 11:00
John Dewey
Á morgun er málþing um áhrif John Dewey á íslenskt skólastarf á Menntavísindasviði Hí. Dagurinn er valinn vegna þess að á morgun er 150 ár síðan Dewey fæddist. Hugmyndir Dewey hafa haft mikil áhrif á flest skólafólk og verið leiðarljós margra við þróun á skólastarfi. Sumir afgreiða Dewey með einföldum hætti, klisjan learning by doing heyrist þá gjarnan. Klisja segi ég vegna þess að þessum orðum er ekki fylgt eftir og ekki pælt í við hvað liggur að baki því sem stundum er nefnt athafnabundið nám á íslensku.
Ég ákvað í tilefni dagsins að rifja upp lítinn kafla úr fyrirlestri sem ég hélt um Dewey fyrir nokkrum árum í tilefni 10 ára afmælis leikskólabrautar HA. Ég valdi kafla um áhrif umhverfis og einstaklings, um fánýtar athafnir og reynslu.
En víkjum aftur að hugmyndum Dewey og áherslu hans á samspil umhverfis og einstaklinga, auðvitað er það svo að þó svo að menntun eigi að eiga sér stað í samspili umhverfis og einstaklings er ekki öll reynsla nauðsynlega þroskandi eða menntandi að hans mati. Hann varaði við fánýtum athöfnum sem virðast hafa það sem markmið að hafa ofan af fyrir og skemmta börnum á kostnað raunverulegrar þátttöku og áhuga þeirra. Þetta sjónarmið má finna bæði í einu af höfuðritum hans Reynsla og menntun ((Experience and Education, 1938) og í Skóli og samfélag (School and society, 1943) en þar gagnrýndi hann m.a. Kindergareten-hreyfinguna.[1] Gagnrýni hans beindist að því að verið væri að leggja fyrir börn verkefni og ætlast til að þau tækju þátt í athöfnum sem ekki fullnægðu því meginmarkmiði að efla hugsun og þroska barna.
Dewey lagði áherslu á að agi yxi út frá vinnunni vegna vinnunnar, hann segir t.d. að ef kennari hafi það sem markmið að börn læri og hafi á takteinum tiltekna þekkingu, svo sem að kunna skil á innihaldi ákveðinnar skólabókar, þá beinist aginn að sjálfsögðu að því markmiði. En ef markmiðið beinist aftur af því að þroska mannsandann, félagslega samhjálp, samvinnu og þess að lifa og starfa í samfélagi þá verði aginn að tengjast þeim markmiðum. Hann telur að þar sem slík markmið ríkja sé tilfinning fólks fyrir röð og reglu nokkuð ólík því sem gerist í fyrra dæminu. Að í skólum þar sem unnið er í anda verkstæðisvinnu sé og verði ákveðin óreiða í gangi. Þar sé ekki hljótt, þar sitji börn ekki kyrr. Í slíkum skóla venjist barnið því að læra í gegn um þátttöku í athöfnum daglegs lífs. Nám verði inngróin venja.
[1]Hreyfing kennd við hugmyndafræði Fröbels um leikskóla
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)