14.3.2008 | 18:22
Á Seyðisfirði á sitthvoru tæi af sokkum - týpísk ég
Ég sat á kaffihúsi í síðustu viku þegar hringt var í mig og ég spurð um vísindasmiðjuverkefnið sem ég hef verið að vinna að í mörg ár. Þetta var ung kona Þórunn Eymundardóttir, framkvæmdastýra Skaftfells á Seyðisfirði. Í framhaldið var ákveðið að ég færi austur á fund með fólkinu í Skaftfelli og á Tækniminjasafni Austurlands til að ræða um mögulegt samstarf. Í gær fór ég austur. Það skal fúslega viðurkennt að augun voru límd þegar klukkan hringdi rétt fyrir 7 um morguninn, skrefin soldið þung. Vélin lenti á Egilstöðum rétt fyrir níu. Ég hljóp út í rútuna sem ferjaði mig yfir heiðina yfir á Seyðisfjörð. Það snjóaði á heiðinni og snjórinn náði sumum rafmagnsstaurum vel upp fyrir miðju. Smá saman fór að glitta í malbiki og rétt fyrir 10 var rennt upp að Tækniminjasafni Austurlands.
Þar tóku á móti mér Pétur Kristjánsson og Helgi Örn Pétursson, þeir reifuðu hugmynd við mig um farandverkefni fyrir skóla. Verkefnið er í formi fræðakistils sem hefur tilvísun, í sögu, sköpun, tilraunir og fleira. Næst fórum við út í Skaftfell og hittum fyrir þar tvær Þórunnar, sú sem er framkvæmdastýra (Hjartardóttir) og sú sem er stýra í barneignarleyfi (Eymundardóttir), með þeir var líka Daníel nokkur Björnsson myndlistamaður. Ég sýndi þeim það sem ég hef verið að fást við, hafði druslað með mér bókum, myndaskráningum og tölvunni. Við ræddum möguleikana um að setja saman verkefni byggt á sameiginlegri reynslu og hugmyndum okkur allra. Ég held ég geti sagt að það hafi farið vel á með okkur og við komist að því að við milli okkar eru margir snertifletir.
Eftir hádegi fórum við í barnaskóla Seyðisfjarðar (Seyðisfjarðarskóla) sem er í 100 ára húsi, með góðum anda. Allir fara úr skónum í anddyrinu, ég líka á sitthvoru tæi sokkum (svona smá litamunir á dökkbláum og svarbláu sá ég í dagsbirtunni). Á veggjum skólans fann ég svo hópmyndir af foreldrum mínum, pabba frá því að hann varð gagnfræðingur og þeim báðum frá Iðnskóla Seyðisfjarðar frá 1956. Skemmtilegt.
Við ræddum lífvænleika hugmyndarinnar frekar við skólastjórnendur barnaskólans, þau Jóhönnu Gísladóttur, aðstoðarskólastjóra og Þorstein Arason skólastjóra. Hvernig möguleg framkvæmd gæti litið út, hver ætti að gera hvað, tengingar við aðalnámskrá grunnskóla, hvernig hægt er að fylgja eftir og meta svona verkefni, mögulega úrvinnslu í ýmsu formi og fleira og fleira.
Á eftir fórum við og skoðum sýningar fyrst í vélsmiðjunni og svo um sögu ritsímans í ritsímahúsinu á Seyðisfirði. Á þessum stöðum tók á móti okkur Grétar Einarsson skólabróðir foreldra minna úr Iðnskólanum. Við vorum leidd í gegn um leyndardóma ritsímans og vélsmiðjunnar. Um hálf sex fór ég upp í flugvél aftur og var lent í Reykjavík í strekkingsvindi upp úr sjö. Góður dagur á enda kominn.
Flokkur: Menntun og skóli | Breytt 17.3.2008 kl. 10:06 | Facebook
Athugasemdir
Mikið var gaman að lesa þessa ferðasögu. Svo er það líka ánægjulegt að sjá að frábært starf samstarfsfólks, eins og vísindasmiðjuverkefnið, er að skila sér á þennan hátt. Vonandi heldur þessi hugmynd þeirra þarna fyrir austan áfram að vaxa og dafna. Keep up the good work
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 08:53
Frábært og mjög spennandi mál á ferðinni.
Skemmtilegur og efnismikill pistill hjá þér.
Þetta segi ég ekki bara vegna þess að ég bý á Seyðisfirði.
Jón Halldór Guðmundsson, 15.3.2008 kl. 15:04
Sæll það var gaman að koma þangað og finna kraftinn í mannlífinu. Ég hef alist upp við sögur af mannlífinu á austfjörðum, aðallega samt Eskifirði og Seyðisfirði. Sumar sannar, aðrar örugglega ... .
Kristín Dýrfjörð, 15.3.2008 kl. 16:27
Þar á súpermaðurinn Guðmundur Þórðarson fyrrv. skólastjóri heima. Bið að heilsa. p.s. Kristín: Segir maður ekki -sitthvoru tagi- ?
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 11:02
Var Guðmundur Þórðarson einhvern tímann skólastjóri?
En hann er súpermaður, það er víst. Og hann er pabbi hennar Þóru líka.
Jón Halldór Guðmundsson, 17.3.2008 kl. 13:03
Frábær saga og myndir! Takk.
Edda Agnarsdóttir, 18.3.2008 kl. 10:11
Gísli örugglega segir maður sitt af hvoru tagi, en ég var sko í sitt af hvoru tæi, svona eins og börnin. Nú þekki ég ekki Guðmund skólastjóra en ef ég rekst á hann skila ég að sjálfsögðu kveðju. Nú eða Jón Halldór geri það**), og takk Edda. Ætli sé ekki best að snúa sér að því að klára yfirferð verkefna, svo páskahreingerningar geti hafist.
Kristín Dýrfjörð, 18.3.2008 kl. 10:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.