5.2.2008 | 17:56
Óskaleikskólinn
Fyrir nokkrum árum bað ég leikskólakennaranema að setja niður á blað hvernig þeir teldu að börn vildu hafa leikskólann, hvað ætti að einkenna starfið þar. Hugmyndina fékk ég frá höfundi bókarinnar Palli var einn í heiminum. Jens Sigsgaard spurði börn hvað þau vildu gera ef þau mættu allt. Í tilefni þess að á morgun 6. febrúar er Dagur leikskólans ákvað ég að deila hugmyndum nemanna með lesendum. En svona telja þeir að óskaleikskóli barnanna sé.
Að börn vilja vera í leikskóla þar sem er
- Gleði
- Öryggi
- Góð samskipti milli allra
- Skemmtilegt starfsfólk (ekki fýlu)
- Lifandi starfsfólk
- Engar vinnustundir sem fullorðnir ákveða allt og stjórna
- Ekki hópastarf oftar en 2x í viku (og hafa það oftar í formi vettvangsferða)
- Góður salur
- Listasmiðja
- Byggingar megi standa (þegar maður er búinn að byggja og byggja þá er svo sárt að þurfa alltaf að rífa niður)
- Tónlist
- Stöðugleiki í starfsmannahaldi (ég þekki fólkið sem heilsar mér í dag og á morgun, það sé ekki alltaf að skipta)
- Hlýlegt glaðlegt starfsfólk
- Reglur skýrar
- Fjölbreytileika
- Skóli þar sem manni líður vel að koma inn
- Vel sé tekið á móti okkur
- Lýðræðislegur
- Þar sem mömmu og pabba líður líka vel
- Þar sem stöðugleiki á meðal starfsfólks
- Þar sem ég læri eitthvað nýtt og get verið með vinum mínum
- Frjáls leikur í fyrirrúmi
- Upplifa njóta augnabliksins
- Langan tíma í frjálsum leik
- Starfsfólk sem er jákvætt og virðir okkur
- Hlýtt hjartalag, knúsar okkur þegar við á
- Flæði megum fara á milli
- Líka að vera út í náttúrunni, njóta þessa að vera til (klifra í trjám og klettum, detta í þúfum og moka sandi í fjöru)
Flokkur: Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 18:00 | Facebook
Athugasemdir
Góð kveðja - var að koma úr Framhaldsskólanum að Laugum
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 5.2.2008 kl. 20:14
ég vona að barnabörnin mín fái að vera í leikskóla sem hefur sem mest af því sem þarna stendur.
Kveðja að norðan
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 22:09
Sé ykkur í morgunkaffi - er norðan heiða í þessum líka fallega snjó.
Kristín Dýrfjörð, 5.2.2008 kl. 23:28
Frábær samantekt - takk fyrir þetta! ..
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 6.2.2008 kl. 14:38
Í framhaldi af þessu, gerði ég stutta könnun á síðastliðnu ári hvað nemendur vildu helst hafa í fari kennara. Svarið sem kom frá þeim flestum var að þeir vildu að kennari væri ,,skemmtilegur" en svo er það víst svolítið afstætt hvað er að vera skemmtilegur. Þar er eflaust átt við viðmót kennara, sem kemur einmitt svo greinilega fram í þessum listum hér að ofan..og ég leyfi mér að ,,kópera" og setja hér inn:
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 6.2.2008 kl. 14:49
Takk fyrir, samskiptagreindin er oft vanmetin en sömuleiðis er fólk æ meira að gera sér grein fyrir gildi hennar ásamt því að geta verið frjór og skapandi. Allt eiginleikar góðra kennara sem að sjálfsögðu eiga líka að fá sæmandi laun.
Kristín Dýrfjörð, 6.2.2008 kl. 14:55
Sæl Kristín.
Það sem ég hef rekið mig á í starfi mínu sem leikskólakennari er alltof mikið skipulag. Allt er tekið inn í starfið án ígrundunar og síðan er engin tími til að fylgja því eftir. Hópastarfstímar og samverur verða ekkert annað en niðurnjörvaðar kennslustundir. Fyrirbærið "frjáls leikur" er ekkert annað en afsprengi þessarar stefnu.
En þetta tuðaði ég nú stöðugt þessi þrjú ár sem ég var í námi ( þar á meðal hjá þér.
Hilmar Trausti
Hilmar Trausti Harðarson (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 13:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.