13.11.2007 | 22:24
Sturla Þór heitir hann litli ömmu og afastrákurinn
Á nafnadaginn - kátastur á teppi að skoða heiminn
Trausti og Íris buðu til nafnaveislu í dag. Þau komu okkur Lilló gjörsamlega í opna skjöldu þegar þau tilkynntu að drengurinn heitir Sturla Þór í höfuðið á Sturlunni okkar. Við táruðumst öll, frænkur og frændur, ömmur og afar í föðurættinni. Þegar kúturinn var nýfæddur sögðum við Trausta og Írisi að það væri engin pressa frá okkur eða að við ætluðumst til að hann nefndi í höfuðið á bróður sínum. Við vildum alls ekki að þau upplifðu pressu, okkur fannst rétt að þau veldu nafn á drenginn sinn á sínum forsendum. Þess vegna urðum við svo hissa en líka innilega glöð.
Sturlan okkar eldri væri tuttugu og þriggja ára núna hefði hann fengið að lifa. Við fengum ekki tækifæri til að sjá hann þroskast sem fullorðinn einstaklingur. Núna fáum við annað tækifæri til að sjá Sturlu vaxa úr grasi. Fyrir það erum við þakklát og hamingjusöm.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:54 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Leikskólakennari, fyrrum leikskólastjóri, lektor við Háskólann á Akureyri, áhugamanneskja um málefni tengd leikskólanum í sinni víðustu mynd. Blogg sem eru sérstaklega um faglega hlið leikskólastarfs er að finna á www.leikskolabanki.blog.is
Efni
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Des. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Eldri færslur
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
fyrirlestrar og ritgerðir
- Fyrirlestur um ytra mat Fluttur á ráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga 6. október 2008
- Fyrirlestur - Hvert barn er sinn eigin kór Fyrirlestur fluttur á ráðstefnu Reykjavíkurborgar og RannUng þann 18. apríl 2008
- MA ritgerðin mín Hér má finna ritgerð mína um matsfræði
- (gömul) Rannsókn um viðhorf leikskólakennar til starfsins rannsókn sem gerð var fyrir um tæpum 15árum
- ritgerð um lýðræði og leikskólastefnur
- Leikskóli og trú - skýrsla
Frumkvöðlar
Umræða um leikskóla - mitt blogg
eldri blogg um leikskólamál,skýrslur og greinar
- Vald til breytinga
- Leikskólinn sumargjöf til barna
- leikskólinn fátækragildra kvenna
- Fjölbreytileiki og fjölmenning
- Hávaði í leikskólum
- Funaborg
- Kjarklaust fórnarlamb
- Fagrabrekka og Reggio
- dagur á Iðavelli
- listir og eðilsfræði í leikskólum
- skólaföt
- Skráning (dönsk)
- Leikskólinn pólitískur
- Hönnun leikskóla
- ógn þöggunar
- hræðslan og sjálfsmyndin
- kynjauppeldi?
- Arkitektúr og leikskólar
Sturlubarnið
- Valdagreining Sturlubarnsins
- Sturlubarnið KRingur
- Fyrsti dagurinn í leikskólanum
- Lj´somyndaáhug Sturlubarnsins og sitthvað fleira
- Sturlubarn í húsdýragarðinum
- Sturlubarnið sullar á Íngólfstorgi og skoðar bækur
- Sturla 1. árs
- Sturla, ferð á tjörn og Stöðlakot
- Heimsókn til ömmu og afa í Skeifu
- Að æfa sig á þroskabrautinni
Bloggvinir
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Bergljót B Guðmundsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Fríða Eyland
- Hörður Svavarsson
- Ingibjörg Margrét
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Valgerður Halldórsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- Bergljót Hreinsdóttir
- Margrét Einarsdóttir Long
- Benedikt Sigurðarson
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Páll Helgi Hannesson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Arna Lára Jónsdóttir
- Björgvin Gunnarsson
- Hlekkur
- Þingmaður
- Ásgerður
- Þóra Guðmundsdóttir
- Steingrímur Ólafsson
- svarta
- Halla Rut
- Sigríður Jónsdóttir
- Gunnar Axel Axelsson
- Gísli Tryggvason
- SVB
- Arnar Ingvarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- cakedecoideas
- Dóra
- Elín Erna Steinarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Himmalingur
- Hinrik Þór Svavarsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morten Lange
- Stella Jórunn A Levy
- Þórhildur og Kristín
Athugasemdir
Bara að lesa þetta var nú nóg til að koma út á mér tárunum. Innilega til hamingju elsku Kristín og skilaðu hamingjuóskum til fólksins þíns.
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 22:48
Takk Anna, skal gera það. Svo "gleymdi" ég að segja að Trausti átti líka afmæli í dag. Ég held samt að hann fyrigefi mér.
Kristín Dýrfjörð, 13.11.2007 kl. 22:56
Elsku Kristín, til hamingju með drenginn og nafnið
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 14.11.2007 kl. 07:45
Elsku Kristín og Lilló - til hamingju með nafnið - ég frétti þetta í gærkvöldi, en að lesa þetta og sjá myndirnar þá táraðist ég. Knús til ykkar
Síta (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 10:57
Til hamingju Kristín og þið öll,
fékk staðfest við lestur þessarar færslu að tárakirlarnir mínir eru í fínu lagi.
hamingjuóskir
Díana
diana (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 19:00
Til hamingju með strákinn! Tek undir með Árna, hann er líkur ömmu sinni
Valgerður Halldórsdóttir, 15.11.2007 kl. 00:45
Til hamingju og gullfallegur er hann.
Systa
bergljót b guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 09:53
Innilegar hamingjuóskir til ykkar, Kristín mín.
Kristbjörg Clausen (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 18:32
Ég hrærðist mjög er las um og skoðaði myndir af ömmu og afastráknum ykkar,,Sturla Þór" maðurinn minn var á gjörgjæslunni um tíma(Helgi Gretar frá Eskif.)þegar ykkar ástkæri ,, Stulli"barðist fyrir lífi sínu,blessuð sé minning hans!Ég mun fylgjast með nýja,,Stulla" hér á síðunni.Bestu kveðjur til forerldra þinna Kristín.
Svanfríður (dóttir Gísla frá Langhúsum Fljótum)
Svanfríður Guðrún Gísladóttir, 17.11.2007 kl. 12:12
Sturla Þór Traustason rules!
Friðrik Þór Guðmundsson, 17.11.2007 kl. 12:46
Takk fyrir Svanfríður, ég man vel eftir ykkur og skal koma kveðjum áleiðis. Vildi reyndar svo til að á leiðinni út hitti ég á Keflavíkurflugvelli eina af þeim hjúkkum sem vann á gjörgæslunni, hún mundi nú enn vel eftir okkur (heilsaði mér raunar að fyrra bragði). Ég sagði henni að við hugsuðum oft til þeirra. Sérstaklega gerum við það þegar slys verða og við vitum undir hverslags álagi deildin er.
En núna er það Sturla Þór Traustason sem á hug okkar allan. Er augasteinn okkar og eftirlæti.
Kristín Dýrfjörð, 17.11.2007 kl. 12:57
Innilegar hamingjuóskir með litla manninn, Kristín mín!
Eygló (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 22:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.