21.9.2007 | 18:20
Hluti vandans eru alltof mörg börn á allt of fáa fermetra
Gott framtak sem ég gleðst yfir. Tel samt að komið sé að þeim punkti að sveitarfélög fari af alvöru að huga að fjölda barna á deild. Held að það sé stór ástæða þess hversu fólk tollir oft illa. Eins og ég hef stundum spurt áður hvernig liði þér lesandi góður að þurfa að vera 8-9 tíma á dag í kokteilpartýi. Þetta er ástand sem er óhæft fyrst og fremst fyrir börnin. 1. Vegna þess að ég held að það sé þroska þeirra og heilsu hættulegt. 2. Vegna þess að starfsfólk gefst upp, verður pirrað og oftar veikt, sem leiðir til verri aðstæðna fyrir börn. Svo barnanna vegna, fjölgum fermetrum á barn.
3 fermetrar er ekki nóg, ein ríkasta þjóð í heimi hefur efni á betri aðstæðum fyrir börnin sín.
Kópavogur samþykkir aðgerðaáætlun í leikskólamálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Menntun og skóli | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.12.2007 kl. 01:03 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Leikskólakennari, fyrrum leikskólastjóri, lektor við Háskólann á Akureyri, áhugamanneskja um málefni tengd leikskólanum í sinni víðustu mynd. Blogg sem eru sérstaklega um faglega hlið leikskólastarfs er að finna á www.leikskolabanki.blog.is
Efni
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Tenglar
fyrirlestrar og ritgerðir
- Fyrirlestur um ytra mat Fluttur á ráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga 6. október 2008
- Fyrirlestur - Hvert barn er sinn eigin kór Fyrirlestur fluttur á ráðstefnu Reykjavíkurborgar og RannUng þann 18. apríl 2008
- MA ritgerðin mín Hér má finna ritgerð mína um matsfræði
- (gömul) Rannsókn um viðhorf leikskólakennar til starfsins rannsókn sem gerð var fyrir um tæpum 15árum
- ritgerð um lýðræði og leikskólastefnur
- Leikskóli og trú - skýrsla
Frumkvöðlar
Umræða um leikskóla - mitt blogg
eldri blogg um leikskólamál,skýrslur og greinar
- Vald til breytinga
- Leikskólinn sumargjöf til barna
- leikskólinn fátækragildra kvenna
- Fjölbreytileiki og fjölmenning
- Hávaði í leikskólum
- Funaborg
- Kjarklaust fórnarlamb
- Fagrabrekka og Reggio
- dagur á Iðavelli
- listir og eðilsfræði í leikskólum
- skólaföt
- Skráning (dönsk)
- Leikskólinn pólitískur
- Hönnun leikskóla
- ógn þöggunar
- hræðslan og sjálfsmyndin
- kynjauppeldi?
- Arkitektúr og leikskólar
Sturlubarnið
- Valdagreining Sturlubarnsins
- Sturlubarnið KRingur
- Fyrsti dagurinn í leikskólanum
- Lj´somyndaáhug Sturlubarnsins og sitthvað fleira
- Sturlubarn í húsdýragarðinum
- Sturlubarnið sullar á Íngólfstorgi og skoðar bækur
- Sturla 1. árs
- Sturla, ferð á tjörn og Stöðlakot
- Heimsókn til ömmu og afa í Skeifu
- Að æfa sig á þroskabrautinni
Bloggvinir
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Bergljót B Guðmundsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Fríða Eyland
- Hörður Svavarsson
- Ingibjörg Margrét
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Valgerður Halldórsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- Bergljót Hreinsdóttir
- Margrét Einarsdóttir Long
- Benedikt Sigurðarson
- Svanfríður Guðrún Gísladóttir
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Birgitta Jónsdóttir
- Páll Helgi Hannesson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Arna Lára Jónsdóttir
- Björgvin Gunnarsson
- Hlekkur
- Þingmaður
- Ásgerður
- Þóra Guðmundsdóttir
- Steingrímur Ólafsson
- svarta
- Halla Rut
- Sigríður Jónsdóttir
- Gunnar Axel Axelsson
- Gísli Tryggvason
- SVB
- Arnar Ingvarsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- cakedecoideas
- Dóra
- Elín Erna Steinarsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Himmalingur
- Hinrik Þór Svavarsson
- Hulda Haraldsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morten Lange
- Stella Jórunn A Levy
- Þórhildur og Kristín
Athugasemdir
Ég er alveg sammála þér með fermetrana. Það er ekki hægt að bjóða börnunum og starfsfólki leikskólana upp á svona lítið rými.
Ekki veit ég hvað er hægt að gera svo að ráðamenn skilji hvernig er að vinna á svona stað þar sem, eins og þú segir að sé eins og í kokteipartýi. Það er góð myndlíking. Ég er sjálf stundum alveg að gefast upp á þessu, finnst eins og maður sé að kafna og ærast í hávaða og plássleysi.
Kannski ættum við að krefjast þess að ráðamenn komi og vinni fyrir okkur í svona eina viku og finni sjálfir hvernig þetta er.
Kveðja, Sigga í Fögrubrekku
Sigríður Jónsdóttir (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 19:45
Sendum þeim boðskort um að mæta í 45 tíma kokteilboð, sjám hvað margir mæta.
En þú og allar hinar (hinir) eigið alla mína aðdáun og sannarlega vona ég að þið gefist ekki upp. En kannski er þetta eins og í illa meðvirkum fjölskyldum það er ekki fyrr en einhver gefst upp og setur stólinn fyrir dyrnar að "alkinn" fer að fatta umhverfið og hversu mikið honum hefur verið leyft að skaða það og hversu illa skaddaður hann er sjálfur. Kannski þurfum við að hætta meðvirkninni.
Kristín Dýrfjörð, 21.9.2007 kl. 23:37
sæl,
var að hlusta á viðtalið við ykkur Möggu Pálu og mikið svakalega var ég ánægð með þig, málefnaleg og ákveðin. Leitt að ekki mátti ræða almennilega t.d. um orðanotkun i Hjallastefnunni. Þessi þáttur staðfesti fyrir mér margt af því sem ég hef haldið fram varðandi stýringuna á Hjalla.
Fermetramálið - verandi nýkomin aftur inn í leikskóla þá líður varla sú stund að ég hugsi ekki um þetta - mér finnst þetta svo svakalegt og hef mikið talað um þetta á mínum leikskóla til að fá fólk til að skoða málið sérstaklega út frá líðan barnanna eða réttara sagt þeim aðstæðum sem þeim er boðið upp á daglangt.
kv. Díana
diana (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 00:45
Enda er það ábyrgðarhlutur - held að í mörgum leikskólum hafi verið sett upp vél-EYRA sem verður grænt ef hávaði er undir ákveðnum mörkum og svo verður það rautt ef hann fer yfir, veit reyndar ekki hvar mörkin eru sett, held að þau séu heldur hærri en lægri en ég held líka að EYRAÐ sé of oft rautt. Segir okkur kannski það sem segja þarf. Er það ekki svo að víða þar sem verið er að pynta fólk er stöðugur hávaði notaður?
Varðandi hjallískuna - þá hef ég í mínum vinahópi stundum rætt um þau orð og stýringu sem mér finnst einkenna starfið þar. Mér finnst hins vegar heiðarlegast að ræða þetta við höfundinn sjálfan, fá hennar skýringar og rök. Alveg eins og ég pæli í hvernig ég tala um leikskólastarfið þá reikna ég með að annað fagfólk geri slíkt hið sama og geti að sjálfsögðu svarað fyrir það. Og Margrét hefur hingað til sannarlega verið fær um að svara fyrir sig. Hitt er auðvitað annað hvort ég "kaupi" svör hennar og rök. Þegar fagfólk rekur skóla sem 1200 börn sækja hlýtur það að þola skoðun og umræðu á þeirri hugmyndafræði sem það leggur til grundvallar. Ég tel það hljóta að þyrsta í hugmyndafræðilegt debatt um stefnu og strauma.
Í mínum huga er það eitt mikilvægasta hlutverk Reggio samtakana að stuðla að hugmyndafræðilegri umræðu - ég vil ekki já-kór, ég vil fá að takast á um leiðir og hugmyndafræði. Mér finnst engin vanvirðing í því fólgin við aðrar stefnur og strauma. Sem dæmi held ég að það sé ekkert leyndarmál að ég er flokksbundin, mér finnst það ekki setja mér takmörk um að ræða þá hugmyndafræði sem aðrir flokkar setja fram frekar en minn eiginn. Mér finnst það einmitt vera lýðræðisleg skylda mín að taka þátt í slíkri umræðu. Mér finnst það sama um leikskólahugmyndafræði. Það að ég aðhyllist ákveðna lífsýn og leikskólafræðilega heimspeki verður ekki til þess að ég megi ekki ræða innhald annarra stefnu og strauma. Þvert á móti, lífsýn mín kallar á að ég geri það.
Kristín Dýrfjörð, 22.9.2007 kl. 01:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.