Maðurinn sem veitti ríkisstjórninni náðarhöggið

Sturla Böðvarsson hefur ákveðið að láta af störfum á Alþingi. Honum hugnaðist ekki að vera ofurliði borinn í kosningu, sérstaklega vegna þess að hann vann störf sín svo vel.  En auðvitað er undirliggjandi það viðhorf að sjálfstæðismenn eigi stól forseta. Hann hefur verið "feitt brauð" handa stjórnmálamönnum sem allir vissu að væru búnir með sitt pólitíska líf.

Kannski stóð Sturla sig vel sem forseti um það má sjálfsagt deila en hann gerði það ekki undir því álagi sem var í þinginu eftir jólafríið. Þá sýndi hann mikla vanhæfni í að lesa í aðstæður.

Vissulega bar Sturla ekki einn ábyrgð á klúðrinu í þinginu daginn sem það hóf störf eftir jólafrí, (frí sem var ansi langt í ljósi ástandsins), en hann bar á því mesta ábyrgð, hann var jú forseti þingsins. Það var þessi fína málaskrá hans sem fyllti mælinn og gerði það að verkum að þúsundir venjulegra borgara streymdu niður á Austurvöll með búsáhöldin, gjörsamlega misboðið. Dómgreindarskorturinn í alþingishúsinu var algjör, vanmáttur ríkisstjórnarinnar og ráðleysi opinberuðust þjóðinni sem aldrei fyrr. Á sinn hátt má segja að Sturla hafi veitt ríkisstjórninni náðarhöggið. Ég er viss um að margir landsmenn telja sig standa í þakkarskuld við hann vegna þess.

Persónulega tel ég að Sturla hefðu átt að hætta afskipti af pólitík, axla ráðherraábyrgð, eftir hvert klúðrið á fætur öðru við rannsókn á flugslysinu í Skerjafirði, aðdraganda þess og eftirmálum. Þar sem sambærileg vandamál og við stöndum frammi fyrir í dag við rannsókn á bankamálinu komu kannski berlegast í ljós. Vanhæfni sem m.a. orsakast af smæð samfélagins, af miklum og sterkum vina- og ættartengslum. 

 

ES. Paranoja sjálfstæðismanna gagnvart Ólafi Ragnari er orðin sambærileg paranoju Jóns Ásgeirs gagnvart Davíð, bæði jafn vandræðalegt að verða vitni að.


mbl.is Sturla og Herdís hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr.  Ég er sammála þér um Sturlu.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.2.2009 kl. 02:10

2 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Þér til upplýsingar Kristín: Það er ekki forseti Alþingis einn og sér sem ákveður dagskrá þingsins. Það er forsætisnefnd sem í eiga sæti formenn þingflokka, forsetar alþingis auk skrifstofustjóra þingsins. Enginn þeirra gerði neina athugasemd við uppsetta dagskrá (sem reyndar var ákveðin í desember) á fundi nefndarinnar áður en þingið var sett 20. jan.

Dómgreindarskorturinn var þess vegna ekki bara Sturlu, heldur einnig Ögmundi, Lúðvík, Jóni, Jóni og Arnbjörgu að kenna.

Ég er hins vegar sammála þér að þessi dagskrá var gjörsamlega úr takt við þann veruleika sem úti fyrir blasti og það hef ég gagnrýnt harkalega.

Sveinn Ingi Lýðsson, 8.2.2009 kl. 02:29

3 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Kannski veittir þú ekki athygli orðunum "vissulega bar Sturla ekki einn ábyrgð" sem var tilvísun til nefndarinnar. En forseti ber ábyrgðina á framkvæmdinni og það að kalla ekki saman nefndina til að endurskoða dagskrána, ber ekki vott um mikið pólitískt læsi.

Kristín Dýrfjörð, 8.2.2009 kl. 03:03

4 identicon

Sturla hefur aldrei gengið í takti. Hann átti að segja af sér eftir Skerjafjarðarslysið. Þess í stað afhenti hann leyfishafanum sem átti vélina sjúkraflug!!!

Maðurinn er gjörsamlega vanhæfur til að koma að stjórnun, það er engin eftirsjá af honum. Farið hefur fé betra.

Kolbrún (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 03:41

5 identicon

Nú er bara að setja fingur í kross fyrir alla þá sem ekki geta beygt hnén fyrir aldurs og gigtar sakir.

Biðja hljóðlátrar bænar til himins, til allra góðra vætta að Davíð Oddsson  þverskallist sem lengst í seðlabankanum, svo að landslýður hafi eitthvað til að plokka í og sjái sýna gömlu landsfeður í nýju ljósi. Þá meina ég líka Ingibjörgu Sólrúnu og Geir Haarde,  sem áttu virkilega erfitt að stíga úr sínum stólum.

Síðan skulum við líka fylgja grannt eftir þeim sem eftir koma, þeir þurfa kannski hjálpar við svo þeir feti ekki í sömu fótsporin.

J.þ.A (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 07:53

6 identicon

Fyrir nokkrum áratugum var ég í  Bandalagi Jafnaðarmanna.  Sótti hádegisfundi hjá Vilmundi  Gylfasyni, geysilega mætum manni sem því miður dó langt fyrir aldur fram. Ég man eftir því að hann sagði það berum orðum að valdamesti maður þingsins væri þingforseti . M.a. vegna þess að hann réði því hvenær mál væru tekin upp, í hvaða röð. Honum væri í lofa lagið að sjá til þess að þingsályktunartillögur kæmu ekkiupp á borðið til umræðu.  Kannski er þetta ekki svona núna, vonandi er búið að bæta úr þessu.

Kannski hefur Sturla aldrei beitt neinu bolabragði í forsetastól, gott fyrir hann.

J.þ.A (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 08:06

7 identicon

Já, vertu eins athugul um að næstu þingforsetar fari að þínum viðhorfum um það sem þeim ber að gera.

Ekki gleyma að gagnrýna, þó þér líki við þá persónu eða flokkinn sem hún tilheyrir.

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 08:23

8 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Fundur forsætisnefndar haldinn fyrr þennan sama dag fannst ekkert athugavert við dagskrána.

Svo einfalt er það nú.

Sveinn Ingi Lýðsson, 8.2.2009 kl. 09:13

9 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Sveinn Ingi; Flokkarnir leitast við að koma sínum málum á dagskrá. Þeir berjast ekki endilega gegn því að mál andstæðinganna, sem sömu andstæðingar leggja höfuðáherslu á, komist EKKI á dagskrá.

Hvaða flokkur ætli hafi lagt höfuðáherslu á að þingmálið um að koma brennivíninu í búðirnar yrði sett á dagskrá? Eru hinir flokkarnir þá "samsekir" af því þeir stöðvuðu ekki mál sem Sjálfstæðisflokkurinn lagði áherslu á?

Þótt það sé forsætisnefnd sem ákvað dagskrána í sameiningu þá var það bara einn flokkur sem VILDI málið á dagskrá. Brennivínsmálið fór ekki á dagskrá AÐ ÓSK neinna annarra.

Friðrik Þór Guðmundsson, 8.2.2009 kl. 12:48

10 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Takk öll fyrir innlitið, varðandi næstu þingforseta vona ég sannarlega að þeir verði pólitískt læsir, hvar sem þeir eru í flokki.

Ég geri líka kröfur til míns flokks, hef þegar gefið út þá yfirlýsingu að ef ekki verður prófkjör ætla ég ekki að kjósa hann. Ég vil sjá að valið verði með lýðræðislegum hætti á lista. Ég vil mikla endurnýjun. Ég vænti þess líka að minn flokkur ástundi ekki ráðningar án auglýsinga. Að hann ráði ekki fólk í sérverkefni sem dagi uppi í ráðuneytum og stofnunum. Gagnsæi verði í alvörunni hugtak sem verði haft að leiðarljósi í opinberri stjórnsýslu.  

Kristín Dýrfjörð, 8.2.2009 kl. 16:16

11 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Vissulega voru nokkrir um að skjóta sig í fótinn í þinginu.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 8.2.2009 kl. 23:53

12 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Hérna er dagskrá 69. fundar 136 löggjafarþings.  Dagskráin uppsett og ákveðin af forsætisnefnd.  Hér sést glöggt hversu þessi hluti þingheims er úr takt og á skjön við allt sem var að gerast í þjóðfélaginu.  Málið snerist fráleitt ekki bara um brennivínsfrumvarpið.

1.Óundirbúinn fyrirspurnatími (óundirbúinn fyrirspurnatími) B462 mál, .
 
a.Krafa um kosningar (óundirbúinn fyrirspurnatími) til forsrh. B463 mál, ÖJ.
b.Ástæður Breta fyrir beitingu hryðjuverkalaga gegn Íslendingum (óundirbúinn fyrirspurnatími) til forsrh. B464 mál, JM.
c.Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum (óundirbúinn fyrirspurnatími) til forsrh. B465 mál, HSH.
d.Álit umboðsmanns um skipan dómara (óundirbúinn fyrirspurnatími) til fjmrh. B466 mál, ÁÞS.
e.Greiðsluvandi einstaklinga og fyrirtækja (óundirbúinn fyrirspurnatími) til viðskrh. B467 mál, EyH.
2.Vátryggingastarfsemi (heildarlög, EES-reglur) A225 mál, lagafrumvarp viðskrh. 1. umræða.
3.Greiðslur til líffæragjafa (heildarlög) A259 mál, lagafrumvarp féltrmrh. 1. umræða.
4.Sala áfengis og tóbaks (sala léttvíns og bjórs) A37 mál, lagafrumvarp SKK. 1. umræða.
5.Olíugjald og kílómetragjald (endurgreiðsla gjalds) A40 mál, lagafrumvarp HöskÞ. 1. umræða.
6.Andstaða við eldflaugavarnakerfi í Austur-Evrópu A49 mál, þingsályktunartillaga SJS. Fyrri umræða.
7.Tóbaksvarnir (reykherbergi á veitingastöðum) A57 mál, lagafrumvarp JM. 1. umræða.
8.Stjórnarskipunarlög (bráðabirgðalög, þingseta ráðherra) A58 mál, lagafrumvarp KHG. 1. umræða.
9.Prófessorsembætti á sviði byggðasafna og byggðafræða A59 mál, þingsályktunartillaga ÁJ. Fyrri umræða.
10.Skipafriðunarsjóður A60 mál, þingsályktunartillaga MS. Fyrri umræða.
11.Áhrif markaðsvæðingar á samfélagsþjónustu A66 mál, þingsályktunartillaga ÖJ. Fyrri umræða.
12.Umferðarlög (forgangsakreinar) A93 mál, lagafrumvarp SVÓ. 1. umræða.
13.Fjármálafyrirtæki (kynjahlutföll í stjórnum) A111 mál, lagafrumvarp SVÓ. 1. umræða.
92.Afsal varaþingmennsku (tilkynningar forseta) B470 mál.
94.Framhaldsfundir Alþingis (framhaldsfundir AlÞingis) B472 mál.
95.Dagskrá fundarins (um fundarstjórn) B473 mál, SJS.
96.Mál á dagskrá -- framhald þingfundar (um fundarstjórn) B474 mál, SKK.
97.

Framhald þingfundar (um fundarstjórn) B475 mál, SJS.

 Var einhver að tala um að Neró hefði spilað á fiðlu meðan Róm brann?

Sveinn Ingi Lýðsson, 9.2.2009 kl. 09:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband