Ef þú vilt drepa frumkvæði, verðlaunaðu það. Getur verið neikvætt að hrósa/verðlauna börn?

Sumarið 2000 var haldin hér á landi merkileg ráðstefna um Öfga öfganna, um áhrif flóða á umhverfið, einn fyrirlesarinn var prófessor Victor R. Baker frá Arizona í Bandaríkjunum en hann ræddi um flóð á plánetunni Mars. Með honum í för var kona hans Pauline Baker sem þá hafði nýlega sigrast á krabba og var ferðin hingað hennar eigin verðlaun. Pauline er áhugamanneskja um leikskólauppeldi í anda Reggio Emilia. Og einmitt í gegn um slík alþjóðleg tengsl hafði hún upp á mér. Dagana sem flóð og afleiðingar þeirra á heiminn voru rædd á Grand hótel, fórum við víða, skoðuðum leikskóla, landið og borgina. Við ræddum auðvitað mikið um leikskólamál. Þegar við kvöddumst sagðist hún ætla að senda mér bók sem ég hefði örugglega áhuga á. Bókina fékk ég svo skömmu seinna. Af öðrum ástæðum fór líf mitt á haus seinna þetta sumar og ég hafði ekki samband til baka og missti tengslin við Pauline.  

 

Bókin sem ég fékk, heitir því skemmtilega nafni Punished by reward eða Refsað með verðlaunum og er eftir Alfie nokkurn Kohn. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að til lengri tíma litið sé sú uppeldisfræði sem byggir á arfleið Skinners hættuleg fyrir börn og þ.a.l. samfélagið. Hann styður niðurstöður sínar með ýmsum rannsóknum sem gerðar hafa verið síðastliðna áratugi. Í tímaritinu Young Children, (sem margir leikskólakennara þekkja vel) september, 2001 er grein eftir hann um fimm ástæður þess að hætta að hrósa börnum í tíma og ótíma fyrir vel unnin verk.   

 

Ég ákvað í tilefni Páska að draga fram þessar fimm ástæður og hvað hann telur að geti komið þeirra í stað. En áhugasömum vísa ég annars á heimasíðu Kohn. 
  1.  DULIN STJÓRN. Segjum sem svo að þú notir orð til að styrkja eða verðlauna hegðun hjá tveggja ára barni sem borðar matinn sinn án þess að káma allt út, eða fimm ára barni sem tekur litina sína saman eftir notkun. Kohn spyr hver hagnast á hrósinu? Hann veltir fyrr sér hvort það hafi minna með tilfinningarlegar þarfir barna að gera en meira með okkar eigin þægindi.  Hann vísar til Rhetu DeVries sem margir leikskólakennarar þekkja frá námsárum sínum, en hún nefnir þessa tegund stjórnunar “sykurhjúpaða stjórnun” (sugar-coated control). Þar sem málið snýst um að við gerum eitthvað við börn til að fá þau til að fara að óskum okkar. En hún bendir á muninn á að gera við og gera með. Sem dæmi að ræða við börn um áhrif þess á aðra að ganga ekki frá eftir sig eða ræða um hvaða áhrif hegðun þeirra hefur á aðra. Að nota í sífellu GOD JOB eða FLOTTUR getur auðveldað líf okkar fullorðna fólksins í skamman tíma en til lengri tíma er afleiðingin fíkn barna í hrós.
  2. Þá kemur að ástæðu númer 2, að við sköpum HRÓS FÍKLA. Því meira sem við hrósum börnum fyrir allt og ekkert því meira fara þau að treysta á dómgreind og ákvarðanir okkar um hvað er gott eða slæmt. Viðmið þeirra verða hvort þau fá hrós eða bros frá okkur ekki þeirra eigin gleði yfir vel unnu verki. Kohn bendir á rannsókn Rowe sem komst að því að börn sem biðu eftir styrkingu hróssins voru líklegri til að gefa eftir eigin hugmynd og svar, þau svöruðu líka gjarnan í spurnartón. Dæmi: kennari spyr hvað eru  5 + 5, barnið svarar í spurnartón 10. Önnur afleiðing er að þau voru líka ólíklegri til að halda áfram við erfið verkefni og að deila hugmyndum með öðrum. Kohn kemst að þeirri niðurstöðu að FLOTT – FLOTTUR geti leitt börn inn í vítahring sem erfitt er að komast út úr. Vítahring þess að treysta sífellt á hrós og viðurkenningu annarra. Hann spyr; viljum börnum okkar þá framtíð að geta aldrei treyst á eigið sjálf, heldur á hrós og viðurkenningu annarra?
  3.  AÐ RÆNA BÖRN ÁNÆGJU. Börn eiga skilið að upplifa ánægju þess að hafa tekist vel til. Að finna til stolts yfir eigin afrekum. Börn eiga rétt til að ákveða hvenær þau finna til stolts. Með því að vera síflett að hrósa þeim fyrir allt, með sífellt að klifa á flott, flottur, vel að verki staðið erum við í leiðinni að segja börnum hvernig þeim á að líða. Kohn bendir á að það sé enginn að halda því fram að hrós sé ekki viðeigandi stundum. Auðvitað er það notað sem leið í uppeldi, en stöðugur straumur hrósyrða, og gildisdóma um verk barnanna, er hvorki nauðsynlegt né börnum notadrjúgt. Sjálfur segist hann gleðjast og geyma með sér andartök þegar dóttir hans gerir eitthvað í fyrsta sinn eða gerir eitthvað alveg sérstaklega vel. En hann segist reyna að halda aftur af sér með að hrósa henni, vegna þess að hann vill að þau eigi þessa ánægju saman en ekki að hún líti til hans og bíði eftir úrskurði um vel eða illa unnið verk. Hann segist vilja heyra, ég gat það, ég gerði það, í stað þess að heyra: Var þetta flott hjá mér?
  4.  MISSA ÁHUGANN. Sífelldar setningar eins og FLOTT VERK getur stuðlað að því að börn haldi áfram að mála (eða hvað annað) eins lengi og hrósið kemur. Hann bendir á annan leikskólasérfræðing sem við leikskólakennarar þekkjum vel Lilian Katz en hún segir að um leið og athygli kennarans fer af verkinu (hrósið stoppi), geti þessi aðferðafræði leitt til að það líði langur tími þar til að börn taki upp viðkomandi verkefni aftur. Málið verði ekki að teikna, lesa eða hugsa, heldur að fá verðlaunin, hvort sem þau eru hrós, ís eða límmiði. Kohn segir að rannsóknir hafi leitt í ljós að því meira sem fólki er hrósað því líklegra sé það til að missa áhugann á verkinu. Hann vísar í rannsókn Grusec um börn sem fengu iðulega hrós fyrir örlæti, þau höfðu tilhneigingu til að sýna minna örlæti í daglega lífinu en börn sem ekki var hrósað.  Þannig að örlæt var ekki eitthvað sem skipti máli í sjálfu sér, heldur eitthvað sem þú fékkst verðlaun fyrir frá fullorðnum.
  5. DRAGA ÚR ÁRANGRI. Ekki nóg með að VEL GERT, flottur geti dregið úr sjálfstæði barna, heldur sýna rannsóknir að börnum sem er hrósað fyrir skapandi starf, séu líkleg til að eiga erfitt með næsta verkefni og þau nái ekki sama árangri og börn sem ekki er hrósað.

Kohn veltir fyrir sér hversvegna þetta gerist. Að hluta telur hann það vera vegna þess að pressan við að halda í fyrri árangur stendur í veginum. Að hluta vegna þess að þessi börn eru ólíklegri til að þora að taka áhættu (sem er í raun forsenda sköpunar). En almennara vegna þess að “Flott, vel gert” smættar alla mannalega hegðun í það sem hægt er að mæla og sjá. Þá er horft framhjá, hugsunum, tilfinningum og gildum sem að baki liggja. Og verst að öllu afleiðingin er að börn fara á endalausar veiðar eftir hrósi.   

Kohn mælir almennt með meiri og lýðræðislegri hugsunargangi og vinnubrögðum í skólum. Þar sem hlustað er á börn og á þeim tekið mark. Hann biður fólk líka að hugsa um þrjár aðferðir til að svara börnum þegar þau gera eitthvað sem við, hin fullorðnu, erum stolt af.

  • Segðu ekkert.
  •  Orðaðu það sem þú sást/upplifðir. “Þú settir skóna sjálf í hilluna”, “þú tókst til eftir þig, þér tókst það”. Með þessu sýnir þú barni að þú hafir tekið eftir því. Þú getur líka í stað þess að segja “fín eða flott teikning” sagt, “þetta er nú stór dreki”. Þegar þú vilt hrósa fyrir örlæti, er hægt að draga athygli að líðan þess sem verður fyrir örlætinu, “sjáðu hvað amma varð glöð þegar þú gafst henni teikninguna þína”.
  • Enn betra en orðun er spurning. “Hvað líkar þér best við teikninguna þína?”, “hvað var erfiðast að teikna?”, “hvernig fattaðirðu hvað allt átti að vera stórt?”,  "hvað viltu segja mér um teikninguna þína?"

Að lokum, Pauline Baker sá ég svo ekki aftur fyrr en ég heimsótti leikskóla í Stokkhólmi með alþjóðlega Reggio netinu síðasta sumar. Þegar við komum í einn leikskólann sátu þau hjón og biðu hópsins. Þau höfðu þá hitt Gunnillu Dahlberg í Helsinki þar sem þau gistu öll í gistiheimili sem háskólinn í Helsinki á, en Victor hafði verið með erindi þar. Gunilla bauð þeim yfir og að taka þátt í hluta af dagskránni. Þetta varð skemmtilegur endurfundur. Já heimurinn er lítill.

* Fyrirsögnin "Ef þú vilt drepa frumkvæði, verðlaunaðu það" er frá Kohn komin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott færsla og þörf lesning - vona að sem flestir foreldrar og afar og ömmur lesi þetta !

Síta (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 17:41

2 identicon

Í anda þessa pistils væri við hæfi að það kæmi ekkert komment, eða kannski bara "þú skrifaðir þennan pistil sjálf Kristín" a.m.k. væri taktlaust að segja "góður pistill Kristín" Hvernig finnst þér það?

Hörður Svavars.. (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 18:30

3 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Iss mér er nokk sama hvort einhver velur hrósa því sem ég er að skrifa, nú eða blammera það, enda er ég ekkert að leita eða bíða eftir því (væri þá löngu hætt að blogga). Ég er reyndar ekkert á móti því að segja, vel unnið, fínar pælingar, (þarft ekki annað en að sjá umsagnir mínar um ritgerðir nema til að sjá það). Það sem ég hinsvegar vil er að fólk hafi skoðanir og geti rætt um það sem þarna kemur fram. 

Það sem ég er að hafa áhyggjur af er þessi mikla atferlismótunarvæðing sem byggir á jákvæðri styrkingu, ættaðri úr sérkennslu sem virðist vera að tröllríða leikskólastarfi sumstaðar. Alveg eins og hrós er stundum viðeigandi, þá fellst ég á að þær aðferðir eru líka stundum viðeigandi. En áherslan er á STUNDUM, því miður sé ég þessar aðferðir ekki fyrir mér sem einhverja allsherjar lausn í leikskólastarfi eins og dæmin virðast sýna í mörgum leikskólum. 

Ég verð að viðurkenna að ég hef áhyggjur af því að rótin sé ákveðið faglegt metnaðarleysi. Því miður. En kannski að þú eða einhver annar, þekkir betur til og geti upplýst mig.  

Kristín Dýrfjörð, 21.3.2008 kl. 19:56

4 identicon

Þú hefur örugglega betri yfirsýn en ég yfir algengi faglegs metnaðarleysis Kristín. Ég get þó sagt að það sem ég hef séð undanfarið er að faglegu starfi hefur víða fleygt fram frá því fyrir tuttugu árum. Það eru mörg merki metnaðar, þó vera kunni að heimspekilegar og fræðilegar forsendur séu ekki sterkar allsstaðar.

Ég trúi því að þeir sem gleypa atferlismótunarvæðinguna hráa og fara að hrósa fram og aftur eins og eróbikkkennari, veri ótrúverðugir. Hljómur hróssins verði holur og leiðinlegur. Enda er það falskt að segja eitthvað sem maður ekki meinar, þannig ætti að veri í hrósinu innlifun eða hluttekning (empathy) sem ekki er auðvelt að lýsa en erfiðara að feika. Þú lýsir þessu innantómi reyndar ágætlega í næsta pistli þínum um hreyfistundina.

Ég held að það sé gott að hafa umræðu um þetta, þó eitt og annað komi spánskt fyrir sjónir eins og talið um hrósfíkla, þó það sé stutt einhverri einni rannsókn. Ég óttast að fólk taki svona of bókstaflega eins og fyrri hluti fyrirsagnarinnar gefur tilefni til. Sá hluti fyrirsagnarinnar er svolítið glannalegur.

Við lifum ekki í svarthvítum heimi þar sem töfralausnir á borð við atferlismótunarvæðingu eða hrósleysi munu aldrei verða algild meðöl. Það er ekki langt síðan mæðrum var kennt af fagfólki að snerting og ástúð væru ekki af hinu góða og undir þeim kennisetningum var alin upp heil kynslóð af Íslendingum.

Nú sé ég að einhverri Sítu finnst þetta flott færsla og þörf lesning - og vonar að sem flestir foreldrar og afar og ömmur lesi þetta ! Afhverju?

Hörður Svavars.. (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 23:18

5 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Sæll, var ekki búin að fatta þetta með eróbikkið, en sé það núna þetta er sama taktíkin, ég er líka alveg 100% sammála þér um að faglega starfið - það er víðast metnaðarfullt, ég hitti marga leikskólakennara og ræði mikið um starfið og veit að svo er. Eins og þú veist líka er ég stolt af því að vera leikskólakennari og mér finnst fólk vera að vinna kraftaverk við hrikalegar aðstæður eins og eru hér á höfuðborgarsvæðinu og eru búnar að vera allt of lengi.   

Hins vegar veit ég líka að það hefur verið tilhneiging í átt til atferlismiðaðra lausna í leikskólastarfinu, lausna sem ná ekki aðeins til "örfárra" barna, heldur eru látnar gagna yfir allan barnahópinn. Þú þarft ekki annað en að fara á netið og skoða heimasíður, það hef ég gert. Fyrir utan að ræða við suma þá sem eru að vinna eftir þessum aðferðum. Stundum eru það leikskólarnir sem hafa óskað eftir þessum aðferðum á meðan að í öðrum tilfellum eru það pólitíkusar sem sjá starf í þessum anda í hyllingum.

Ég er líka sammála þér um að heimurinn er hvorki svartur eða hvítur, hann er líka allt þar á milli og að við verður að læra að meta allt litrófið. Ég er og hef verið fylgjandi fjölbreytileika í starfi og hugmyndafræði leikskóla, þó það sé heldur ekki leyndarmál að eftir sumum stefnum vil ég ekki starfa. Ég held ekki heldur að ég hætti að hrósa eða fara jákvæðum orðum um það sem mér finnst vel gert. Né að það sé ætlun Kohn að svo sé gert, ég held hins vegar að innihaldslaust hrós (eins og ég lýsi hér í annarri færslu) sé engum til góða, ekki frekar en ég held að það að segja takk fyrir matinn og fá fyrir það verðlaunapening (það er í einni þessari aðferð) sé einhverjum til góða. Kannski er ég í hjarta mínu svo mikill krati að að gullna meðaleiðin virðist alltaf liggja mér nærri. Síta verður auðvitað sjálf að svara hversvegna henni líkaði færslan en ég held samt að viðbrögð hennar hafi eitthvað með það að gera að ofnota ekki klisjur, hún er nefnilega þessa daga að leggja lokahönd á meistaraprófsritgerð um umhyggju  í leikskólastarfi.   

Glannalega fyrirsögnin mín var nú beint frá Kohn komin, kannski að hann hafi fattað þetta með að það að vera öfgafullur nær því miður í gegn á meðan að enginn hlustar á okkur sem erum erum að reyna að rata gullna meðalveginn.   

Ps. Get reyndar bent þér á fleiri greinar og rannsóknir um m.a. neikvæð áhrif umbunurnar. Um málið hafa verið átök í hinum bandaríska fræðaheimi lengi. 

Kristín Dýrfjörð, 21.3.2008 kl. 23:57

6 identicon

Þegar of mörgum börnum er hrúgað í of lítið rými í of langan tíma skapast jarðvegur fyrir lausnir við vanda sem ætti ekki að vera til.

Þannig verður auðveldara að lifa af ef börnin eru látin labba eftir örvum á gólfinu og marsera eins og dátar í átt að markmiði sem er valið fyrir þau. Það kann líka að verða freistandi að atferlismóta allan hópinn.

Pistillinn þinn er ágætur til umræðu í okkar stétt, en ég veit ekki hví afar og ömmur ættu að lesa svona "öfgafull" (eins og þú orðar það) skilaboð. En Síta getur svarað því.

Hörður Svavars.. (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 00:27

7 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Sæll aftur félagi, kannski þú hafir hitt naglann á höfuðið, aðstæður hafa ekki verið eins og best er á kosið til lengri tíma. Ég hef bölvað þessum fermetrum lengi og ég hef skrifað um þær hættur sem ég tel stafa af plássleysi. Kannski þær séu sá jarðvegur sem bíður fólki að líta til svona lausna.

Sem nýbökuð AMMA, þá finnst mér óskaplega gaman að stæra mig af afrekum ömmustráks, sem er einmitt þessa daga að myndast við að sitja ein. Hann er þessa daga að uppgötva heimurinn lítur örðuvísi út frá þeirri stellingu en hann áður sá. Svo er ég að gera ýmsar tilraunir (alveg satt) með honum. Held að okkur finnst það jafnskemmtilegt þér að segja. En ég held líka að það að knúsa hann og segja honum að mér finnist hann algjört undraverk (sem mér finnst) er ekki að gefa innhaldslaust hrós og því ætla ég að halda áfram.

Kristín Dýrfjörð, 22.3.2008 kl. 00:54

8 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Eðlilega viðbrögð umhverfisins eru börnum afar miklivæg, fölsk viðbrögð og eða óskiljanleg eru skemmandi hvort sem það er tilbúið falskt hrós eða handahófskenndar og óréttlátar skammir - verst virðist þó sinnuleysi.

- Vonandi skilur þig enginn þannig að ekki megi hrósa börnum.

Helgi Jóhann Hauksson, 30.3.2008 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband