Rota jólin

Tæmum glös og gleðjum lund
þó gusti um norðurpólinn.
Það er vani að vaka stund
við að „rota“ jólin.
                  (Stefán Stefánsson frá Móskógum á Bökkum)
Þessi vísa er eftir Skagfirðing nokkurn sem lýsir þar þeim sið að rota jólin á Þrettándanum. Það gerum við líka í minni fjölskyldu. Aðallega held ég nú að við höfum haldið í siðinn vegna þess að þá á mamma afmæli. Þegar við mættum í Skeifuna í dag var hún búin að útbúa veisluborð úr öllum afgöngum jólanna og meiru til. Við mættum öll til að gleðjast með henni og kýla vömbina svona áður en lagt verður í átak ársins. Bræður mínir mættu að venju með rakettur og blys. Held að stærstu kökurnar sem þeir sprengdu hafi verið á stærð við þvottavélar.  Börn á ýmsum aldri skemmtu sér við að skjóta upp en við hin létum nægja að horfa út um stofugluggann.  
  
Við rifjuðum líka upp úr æsku okkar Þrettándagleði á Króknum, þegar Álfadrottning og Álfakóngur komu í hestakerru á Þrettándabrennu á Flæðunum. Þegar fólk safnaðist þar saman og söng Stóð ég út í tunglsljósi og fleiri lög.   
   
Já við rotuðum jólin með glæsibrag þó ekki hafi verið vakað lengur að skagfirskum sið - enda fylgir víst þeim sið að fá sér oggulítið í tána og á morgun er vinnudagur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Líklega má segja að mín aðferð til að rota jólin hafi verið að fara um heimilið eins og stormsveipur á sunnudaginn (sjálfan þrettándann) til að fjarlægja allt jólaskraut á sem stystum tíma (skyldi bara jólatréð eftir). Veit ekki betri útrás eftir þetta langa matar- og svefnsukkstímabil - úff: Öll fötin mín eru farin að mótmæla þessum jólum. 

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 21:13

2 identicon

Sæl frænka,  og gleðilegt ár ég rotaði jólin frekar rólega , tók niður jólaskraut og moppaði, en hafðu það gott og skilaðu kveðju til stórfjölskyldunnar kv.Biddý siglófrænka

Brynhildur Baldursdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 13:05

3 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Takk frænka fyrir innlitið, skal skila siglfirskri kveðju til skeifuliða.

Kristín Dýrfjörð, 23.1.2008 kl. 01:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband