Yndið okkar yngsta og besta

litli mann og afi hans vef 

afi og litli mann

Nú er ég búin að fá úthlutað skemmtilegasta hlutverki lífsins held ég. Ég er komin í mafíuna, orðin löggilt amma. Búin að fá opinbert leyfi til að spilla og dekra. Við Lilló erum búin að eignast nýtt yndi. Yndið yngsta og besta. Þessi litli maður sem fæddist rétt fyrir miðnætti þann 25. september, er undraverk. Hann er strax persóna. Verður reiður ef hann fær ekki að drekka og hefur ágætis raddbönd. Reigir höfðinu og ýtir sér næstum upp á fjóra þegar hann er lagður á magann í vöggunni.  Horfir svo dökkum augum á okkur, veltir fyrir sér hvað allt þetta fólk sé að vilja. Svo segir afi að hann hafi gítarputta. Held að ég gæti setið allan daginn og dáðst af honum. Hann er dásamlegur.  

 

lilti mann vef
litli mann ekki sólarhringsgamall


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yndislegt, til hamingju Kristín mín, ég fæ nú bara gæsahúð og unaðshroll.

Kristbjörg Clausen (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 21:47

2 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Og það var næstum í gær að ég fæddi Trausta, ekki næstum 28 ár og nú er hann orðinn pabbi. Svona er lífið einu sinni skrítið og skemmtilegt.

Kristín Dýrfjörð, 27.9.2007 kl. 21:50

3 identicon

Kæra Kristín innilega til hamingju með yndið

Svava Björg Mörk (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 22:16

4 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Til hamingju með drenginn  - og njótið vel!

Valgerður Halldórsdóttir, 27.9.2007 kl. 22:23

5 Smámynd: svarta

Til hamingju nafna mín - lifðu í lukku, en ekki í krukku.

 kv, K

svarta, 28.9.2007 kl. 01:12

6 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

TAKK ALLAR ÞIРERUÐ NÁTTÚRULEGA ALVEG YNDISLEGAR. Ég er svo heppin að báðir foreldrar og afi eru alveg fótboltasjúk, og því hef ég fengið fyrirheit um að fá að að hugsa sérstaklega um piltinn þegar útsending er frá tilteknum leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Svona þangað til hann verður gjaldgengur í áhorfshópinn.

Kristín Dýrfjörð, 28.9.2007 kl. 01:24

7 identicon

Elsku Kristín, innilega til hamingju til ykkar allra.

Sigrún

Sigrún Þórsteins (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 09:34

8 identicon

Sæl Kristín.

Innilegar hamingju óskir. Ég hlakka líka mikið til að verða amma, ekkert á leiðinni ennþá, en það verður örugglega stórkostlegt þegar að því kemur. Systur mínar eru orðnar margfaldar ömmur og ég fæ stundum að prófa að vera amma á ská hjá þeim. Það er samt örugglega ekki það sama.

Til hamingju líka með stofnun samtakanna um daginn. Vona svo sannarlega að þér gangi vel að stýra þeim og þau vaxi og dafni.

Kveðja,

Fjóla Þorvalds.

Fjóla Þorvalds (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 15:54

9 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Þetta er náttúrulega kostur þess að eiga sjálf börn ung, við fáum stundum ef við erum heppin líka að verða ömmur eða afar nokkuð "ung". Drengurinn fær að fara heim á eftir og við ætlum að sjálfsögðu að mæta í heimsókn.

Kristín Dýrfjörð, 28.9.2007 kl. 15:59

10 identicon

Ég óska þér til hamingju með að vera orðin amma. Ég er einnig komin í þetta hlutverk og er það yndislegt.

 Kveðja, Sigga í Fögrubrekku

Sigríður Jónsdóttir (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 23:48

11 identicon

Bestu hamingju óskir Kristín og fjölskylda. Ég tek undir þá fullyrðingu að það  er yndislegt að vera amma.

Kveðja Sigrún

Sigrún Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband