Fyrirsögn - Mogganum ekki samboðin

Fannst alveg óþarfi að nota þessa fyrirsögn bæði í mogganum í morgun (þar sem hún var flennistór) og hér á vefnum, virkar eins og skemmdarverk og leiðindamórall hjá blaðinu. Ég veit um fólk sem er búið að bíða spennt eftir síðustu bókinni og með fyrirsögnum sem þessum er verið að gefa ýmislegt í skin. Finnst þessi húmor fyrir neðan virðingu moggans. 
mbl.is Harry Potter allur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er einmitt ein af þeim sem las fyrirsögnina og varð frekar fúl, hefði vilja lesa endirinn sjálf .... las svo aðeins lengra og uppgötvaði að þetta var bara hallærisleg fyrirsögn

Svava Björg Mörk (IP-tala skráð) 21.7.2007 kl. 13:57

2 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Já einmitt, bara til að skemma fyrir fólki, ég gafst reyndar upp eftir þriðju bókina en sonur minn segir mér að síðustu bækurnar séu betri, hann liggur  nú heima hjá sér fastur við sófann til að klára, hann er bara ekki jafn hraðlæs og mamma hans getur verið. Held að helgin fari í þetta hjá honum **), en hvernig líst þér á London ráðstefnu- fargjald 30 Þ. tveir í herbergi 5 þ. á manninn og svo ráðstefnugjald 18 þ. = ca 55 -60 þúsund. (svo er hægt að bjóða eiginmanni með og hann getur t.d. farið á leik, gert úr þessu helgarferð)

Kristín Dýrfjörð, 21.7.2007 kl. 14:09

3 identicon

Er einmitt búin að ræða þetta við eiginmanninn  hann er bara svo upptekin með hamar og sögina að hann heyrir ekki í mér  held alla vega að það sé málið  En mér lýst mjög vel á þessa ráðstefnu, held jafnvel að ég skelli mér á þetta (þetta væri allt svo einfalt ef ég ætti ekki 3 börn, væri í vinnu og námi líka )

Svava Björg Mörk (IP-tala skráð) 21.7.2007 kl. 14:14

4 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Skil vel að lífið geti verið flókið með öllum þessum hlutverkum, en það má líka láta hluti eins og ráðstefnur fara fram hjá sér, það kemur nefnilega önnur eftir þessa, ekki satt?

Kristín Dýrfjörð, 21.7.2007 kl. 14:55

5 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

ps. hef samt veitt því eftirtekt að gylliboð um ferð á fótboltavöll, fær ólíklegustu karla (jafnvel konur) til að vilja skreppa til útlanda.

Kristín Dýrfjörð, 21.7.2007 kl. 14:57

6 identicon

Það er satt að ég verð að læra að láta ráðstefnur fram hjá mér fara  frekar erfitt þegar ég er haldinn þeirri þörf að vera alls staðar, alltaf. En maðurinn minn virðist vera undantekningin varðandi fótbolta, finnst hann leiðinlegur. En við Helga Björg erum líka búnar að skrá okkur á kúrs í Svíþjóð í október, Reggio Emilia i praktiken. Kannski að ég láti það duga í bili, stefni svo að ferð til fyrirheitna landsins í maí

Svava Björg Mörk (IP-tala skráð) 21.7.2007 kl. 15:05

7 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Það er mikið hvað Harry Potter hreyfir við fólki með og á móti - mér sýni Jóhannes Ragnarsson vera enn illskeyttari í garð hans en hanna er í garð femínista. Hef ekki reynt að lesa Potter fremur en Illugi Jökulsson (Blaðiðí dag), en Illugi hælir samt Rawlings fyrir að framkalla slíka spennu um bækur, og undir það get ég tekið, því fátt jafnast á við bækur.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 21.7.2007 kl. 19:35

8 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Las greinina eftir Illuga og fannst hún skemmtileg - sérstaklega með áhugalausa innkaupastjórann. Mér finnst líka frábært að hafa náð því að bækur urðu "inn". Vona bara að það hafi yfirfærslugildi svona eins og sagt er að skákin hafi á annað í lífinu. 

Kristín Dýrfjörð, 21.7.2007 kl. 19:55

9 identicon

Sæl lýst vel á þessa ráðstefnu í haust og stefni á hana. Veist þú um ódýrt hótel í nálægð við ráðstefnu staðinn?  kveðja Síta

Sigríður Síta (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 09:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband