Flottir krakkar

Frábært afrek hjá Salaskólakrökkum. Tók sérstaklega eftir að þetta er blönduð sveit. Áfram stelpur og strákar í skákinni. Oft verða svona afrek líka til þess að ýta undir almennan áhuga. Ég vona sannarlega að það eigi líka við í þetta skiptið - nú verði enn meiri áhugi á hinni frábæru íþrótt, skák.


mbl.is Salaskóli heimsmeistari grunnskólasveita í skák
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: svarta

Það var íþróttadagur í dag í skólanum hennar dóttur minnar. Allir fóru saman á íþróttavöll háskólans og borðuðu pikknikk. Eftir það voru leikir og gaman, gaman. Ég stóð mína plikkt í markinu, en var beðin um að verja ekki. Ég lék lélegan markmann með miklum ágætum. Er svotlið þreytt, en ætla að halda áfram að pakka :)

svarta, 18.7.2007 kl. 15:51

2 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Þannig að það er hægt að stunda fleiri tegundir af íþróttum en skák. Veit þú hefur ekki varið með glæsibrag. Ég er annars að hugsa um að skrifa nýtt blogg um sápukúlur. Hef lagst í rannsóknir um eðlisfræði og sögu sápukúlunnar. Verður kannski menntuð umfjöllun og uppskrift af fyrirtaks sápulegi - sem gerir mögulegt að blása risasápukúlur. Þarf að hugsa aðeins um það, skrapp í Eymundson og keypti mé reyfara er að hugsa um að leggjast makindalega upp í sófa með hann og sneið af besta brauði í bænum, graskersbrauð frá Bernhöftsbakaríi og góðum kaffibolla. ummumum

Kristín Dýrfjörð, 18.7.2007 kl. 17:06

3 Smámynd: svarta

Hurðu ég er mikill aðdáandi sápukúla. Ég var einmitt að pakka alls konar véldrifnum og ó-véldrifnum sápukúlu tækjum sem börnin mín hafa sankað að sér hér í UK. Held ég sé að verða búin að pakka. Þrjár risastórar töskur stútfullar. Þarf að kaupa eina í viðbót á morgun. Bara litla. Búin að senda fjóra bóka- og húsbúnaðarkassa heim með skipi .... grein númer tvö farin í tímarit ... hefði samt þurft að vinna hana betur ... ég ætla að sofa núna !!!

svarta, 18.7.2007 kl. 22:24

4 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Þú verður að sýna mér allt gismóið þegar heim kemur - er sérstök áhugakona um allt slíkt. skal gefa þér fyrirtaks uppskrift, svo lögurinn í tækin setji þig ekki á hausinn. En gott að greinin er farin og líka að þú hafir sent dótið þitt með skipi. Verða þá ekki færri kolefnisspor sem þú skilur eftir þig? Verður gaman að sjá þig hér heima a Fróni.

Kristín Dýrfjörð, 19.7.2007 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband