Heimaskólar?

Er Sjálfstæðiflokkurinn að leggja til að heimaskólun verði tekin upp í miklu mæli á Íslandi - eða hver er hugmyndin?
mbl.is Miklar umræður um skólamál á landsfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það er verið að tala um leikskólaaldurinn

Rakel (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 19:58

2 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Ég var ekki á fundinum og hef ekki annað en þaðs em stendur í fétt MBL, þar kemur fram:

"þó einna mest um það hvort taka skyldi fram að í samræmi við grundvallarreglu um að fé fylgi barni skipti engu hvort sá styrkur færi til opinberra aðila, einkaaðila eða til heimilisins sjálfs"

Ekkert hér að verið sé að ræða um leikskóla - ekki það að það er sjálfsagt hægt að heimaskóla leikskólabörn eins og önnur börn - er nýyrði um heimgreiðslur sem flokkurinn afgreiddi einhvertíma sjálfur sem afturhald - en það er annað mál.

Kristín Dýrfjörð, 14.4.2007 kl. 20:10

3 identicon

Sjálfsögð mannréttindi fyrir foreldra að fá að ala upp sín börn sjálf. Nú er það aðeins á færi efnameira fólks að leyfa sér þann munað að ala upp sín börn. Naut þess í botn að fá að ala upp mín börn á aðstoðar uppeldisstofnanna.

Elías Theodórsson.

Elías (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 20:42

4 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Það er ekkert verið að tala um leikskólann í þessari frétt heldur heldur einfaldlega skóla og fræðslumál og að skólaféð fylgi barninu, og þessvegna að heimili verði  að ákveða hvort það hafi efni á að senda barnið í skóla eða eigi fremur að taka féð til sín og hafa barnið heima og kalla það skóla. 

Helgi Jóhann Hauksson, 14.4.2007 kl. 21:08

5 Smámynd: Andrea

Jú, hér er verið að ræða um leiksólabörn, ég var á þessum fundi og þessi texti sem Kristín Dýrfjörð vísar í fellur undir leikskólamál ályktunarinnar.

Hinsvegar ver heimakennsla einnig rædd og komst í gegn en ekki í þessu samhengi. Þar segir í ályktun skóla- og fræðslunefndar um grunnskólabörn: "Landsfundur hvetur til umræðu um hvort taka eigi upp fræðsluskyldu í stað skólaskyldu."

Ég sé ekki afhverju það má ekki skoða þetta. Kerfið er ekki svo einfalt, Helgi Jóhann, að dæmi þitt gangi upp. Það kemur hvergi fram í þessari ályktun að foreldrar fái borgað fyrir að kenna börnunum sínum heima. Þar var einungis rætt um leikskólabörn. 

Einnig munu börnin þurfa að gangast undir próf eins og aðrir jafnaldrar þeirra og ef upp kemst að foreldrar eru ekki að sinna fræðsluskyldu sinni, þá verða þeir einfaldlega kærðir af barnaverndarnefnd.

Andrea, 14.4.2007 kl. 22:25

6 identicon

það er víst verið að tala um leikskólabörn... ég hefði nú ekki verið að leiðrétta þetta með því að skrifa þessa athugasemd mína nema að ég vissi það fyrir víst!

Rakel (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 23:58

7 Smámynd: Kristín Dýrfjörð

Sæl öll og og takk fyrir athugasemdir - eins og þeir sem lesa frétt moggans sjá er ekki gott að vita við hvað er átt - nú vitum við það eftir fyrstu heimildum. Það er sem sagt samþykkt stefna sjálfstæðisflokksins að taka upp heimgreiðslu undir nýju nafni.

Heimaskólun er þegar leyfð á Íslandi og má benda á skýrslu sem unnin var hjá Rannsóknarstofnun KHÍ (www.khi.is) þar sem heimaskólun í Ölfusi er tekin út. Heimaskólun hefur verið ástunduð í  Bandaríkjunum lengi - en í kring um hana er gjarnan reknar allavega stuðnings og eftirlitsstofnanir.

Hvort það sé verið að gera lítið úr kennurum skal ósagt látið - það er allt önnur umræða - foreldrar geta nefnilega verið menntaðir líka - menntaðir í víðum skilningi þess orðs. ps ég er ekki að mæla með heimaskólun - en við skulum heldur ekki gera lítið úr foreldrum.

En varðandi skólaskylduna hafa líka oft verið leyfðar á henni undantekingar og má minna á að Waldorf grunnskólinn var rekinn á þeim forsendum til að byrja með - foreldrar sóttu um undanþágu frá skólaskyldu en sinntu fræðsluskyldu sinni með því að senda börnin í Waldorfsgrunnskólann. Sem verður að teljast töluvert öðruvísi skóli en flestir ísl grunnskólar.  

Kristín Dýrfjörð, 15.4.2007 kl. 00:18

8 Smámynd: Elías Theódórsson

Heimaskóli hvort sem er leikskóli eða grunnskóli eru sjálfsögð mannréttindi og jafnréttismál. Heimaskólinn í Ölfusi sem þú vitnar í hefur gengið vel, þar er ekki um neinar heimgreiðslu að ræða heldur hafa foreldrarnir borgað leiksskóla og grunnskólamenntun barna sinni sem aðrir nemendur fá frítt. Foreldrarnir eru sáttir við það því heimaskólinn er þeim svo mikilvægur. Til að gera fleirum þetta kleift þarf að koma til fjárhagslegur stuðningur svo þetta verði ekki forréttingi efnafólks. 

Elías Theódórsson, 15.4.2007 kl. 13:15

9 Smámynd: Elías Theódórsson

Kíkið á www.homeschool.com

Elías Theódórsson, 16.4.2007 kl. 15:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband