Leikskólastarf

Í leikskólum landsins á sér stað metnaðarfullt starf. Margir skólar skrá starfið á ýmsa vegu, ljósmyndir eru algengar og svo hafa smámyndbönd verið að ryðja sér til rúms.  Á heimsíðum margra skóla er hægt að sjá slík myndbönd sem eru eins og gluggar inn í starfið. Gluggar sem gefa foreldrum, fjölskyldum og jafnvel þeim pólitíkusum sem áhuga hafa eilítið blik inn í daglegt starf og sérstök verkefni. Myndböndunum er ætlað að upplýsa og mennta og stundum skemmta.  Í tilefni Dags leikskólans þann 6. febrúar ákváðu félög leikskólakennara að fara af stað með litla örmyndbandasamkeppni. Hver skóli má senda inn þrjú, þriggja mínútna myndbönd. Ég hlakka mikið til að sjá afraksturinn, sjá það hluta af því frábæra starfi sem á sér stað í leikskólum landsins.

Nokkrir leikskólar eiga sínar eigin youtube síður. Meðal þeirra er leikskólinn Furugrund í Kópavogi sem gefur þar nokkuð góða mynd af starfinu, önnur síða er tengd leikskólanum Urðarhóli í Kópavogi, en Birte Harksen leikskólakennari hefur haldið úti öflugri youtube síðu sem aðallega er tileinkuð tónlistaruppeldinu í leikskólanum. Það er merkilegt að geta þess að eitt myndbandið þar hefur yfir 300 þúsund áhorf.  Nýjasta síðan er sennilega síða leikskólans Aðalþings í Kópavogi en á henni er enn fá myndbönd, enda skólinn til þess að gera nýr. Þessir leikskólar hafa líka vel virkar heimsíður sem að mestu virðast opnar öllum sem áhuga hafa.

Ég get þess að þær eru opnar því margir skólar hafa farið þá leið að læsa síðum sínum. Það eru margar ástæður þess að skólar velja að fara þá leið, ein þeirra er hræðsla um að efni sé notað án heimildar og e.t.v. ekki á sanngjarnan hátt. Vandinn við að loka síðum er hins vegar sá að þá gegna þær ekki því hlutverki að vera gluggi inn í leikskólastarfið og í leiðinni efla skilning fólks út á hvað það gengur. Það er þessi vandaða meðallína sem er erfið að rata.

Lengst af hefur ein öflugasta leikskólasíða landins verð síða leikskólans Iðavallar á Akureyri. Á Iðavelli hafa þau trú á opnum hugbúnaði og opnum síðum. Þau hafa meðal annars bent á að ekkert sem særir eða gerir lítið úr börnum rati á síðuna. Að virðing barna sé höfð að leiðarljósi við val á efni. Annars má benda á að flestir leikskólar á Akureyri hafa nokkuð virkar heimasíður.  Það sem meira er þær eru flestar unnar frá grunni í viðkomandi skólum, reyndar finnst mér að sumir skólar mættu alveg minnka skrautið og krúsidúllurnar á síðunum sínum. Mér finnst síður allmargra Reykjavíkurskóla geldar í útliti og eiginlega bara ljótar. Þetta eru joomla síður sem virðast staðlaðar en lítt hugað að fagurfræði eða notendaviðmóti. Sjálf reyndi ég mig einu sinni við Joomla kerfið en verð að viðurkenna að ég náði ekki andlegu sambandi við það. Segir örugglega meira um mína tölvufærni en kerfið.  Margir þekkja síður Hjallastefnunnar sem fleiri leikskólar kaupa. Þær er afar snyrtilegar en hafa ekkert þróast úlitslega í mörg ár. Á þeim eru líka viðmótsgallar sem gerir það leiðigjarnt að ferðast um þær. Síður leikskólanna í Reykjanesbæ eru samhæfðar en á margan hátt frekar þægilegar, heilsusleikskólarnir kaupa augljóslega sama kerfi og Reykjanesbær.

Auðvitað verða þeir leikskólar sem hafa heimsíður, hvort sem þær eru opnar eða lokaðar, fallegar eða ljótar að gæta að virðingu barna og stafsfólks. Best er auðvitað að hver skóli móti sér eigin vinnureglur, siðareglur um netbirtingu.

Nýlega var ég að vinna myndband um leikskólastarf. Ég var að klippa sama fjölda brota og búa til heildstæða mynd. Ég var nokkurnveginn búin að móta útlínur handrits og leitaði svo í brotunum hvað félli að því. Oft fann ég klippur sem hentuðu efnislega, en ekki frá því sjónarhorni að gæta virðingar barna.

Ég þekki leikskólafólk sem aldrei birtir myndir eða brot þar sem börn gráta, en er allur grátur sjálfkrafa slæmur?  Bara svona pæla.  

Að lokum væri frábært að fá ábendingar um virkar leikskólasíður.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband