Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Ég lamdi mann og það er auðvitað mitt einkamál

"Ég lamdi mann rétt fyrir neðan MR um daginn. Ég var reyndar búin að "gleyma" að það eru eftirlitsmyndavélar á gamla Heimilisiðnaðarfélagshúsinu og sjálfsagt á Glitni banka líka. Svo kom löggan og ætlaði að kæra mig fyrir þetta "meinta" ofbeldi (ég sem danglaði nú bara í manninn og sparkaði lauslega í hausinn á honum). Nú er ég búin að stefna löggunni í Reykjavík fyrir að nota myndir af mér í óþökk minni. Þeir þekktu mig ekki alveg strax á öryggismyndaupptökunni og settu þetta þess vegna í sjónvarpið. Þar með voru þeir búnir að brjóta á mér, þessir andskotar. Brjóta friðhelgi einkalífs míns og nota myndir af mér í óþökk minni og það til opinberar birtingar. Já ég er náttúrulega alveg saklaus."

Datt þetta svona í hug þegar ég hlustaði á fréttirnar á stöð 2 í kvöld. Þar notaði maður nokkur álíka rök til að reyna að fá lögbann á Kompásþátt á morgun. Munnurinn á mér hangir enn laus. Kjálkinn er í naflastað.  

Er svona dramatísk í kvöld, enda að koma úr óperunni.


Söfnun til styrktar Mænuskaðastofnun Íslands

Í gærkvöldi var söfnun til styrktar Mænuskaðastofnun Íslands. Því miður var ég upptekin við annað og gat ekki fylgst með. Við Lilló vorum búin að ákveða að gefa í söfnunina og um það sá hann í gærkvöldi. Okkur finnst málið vera okkur skylt. Hefði Sturla sonur okkar lifað sitt slys, hefði það verið líf bundið í hjólastól. Hann fékk ekki það tækifæri nema í örfáar vikur, en við fengum tækifæri til að gefa í þessa söfnun. Í dag er ég hinsvegar búin að vera að leita frétta af söfnuninni á vefmiðlum og hef ekkert fundið. Nú vona ég bara að söfnunin hafi gengið vel og minni á að enn er hægt að gefa.   

Jafnrétti í leikskólum, rigningin er kvenkyns, stormurinn karlkyns

Í morgun mættu fulltrúar 12 leikskóla úr fjórum sveitarfélögum á fundi um sameiginlegt verkefni. Fundurinn var haldinn í Skapandi efnisveitunni í Hafnarfirði. Stjórn SARE hafði lagt til að þetta fyrsta verkefni fjallaði um veðrið. Veður stendur okkur öllum nærri. Það hefur áhrif á líðan okkar, á bæjarbraginn, það er stór hluti af sögu okkar og menningu. Veðrið snertir innsta kjarna hverrar manneskju.  

Í morgun unnum við drög að rannsóknarspurningum um veðrið, rannsóknarspurningum sem koma til með að vera rauður þráður í verkefninu. Leikskólarnir sem voru á fundinum eru mjög ólíkir en deila samtímis ákveðinni uppeldislegri sýn. Við vitum þegar að leikskólarnir ætla sér að tengja verkefnið á mismunandi hátt inn í starfið hjá sér. Sumir tengja það sem þeir eru þegar að gera, aðrir ætla að hafa það þungamiðju. Hver og einn skóli vinnur eins og honum hentar, en allir skuldbinda sig til að gera skráningar á því sem þeir eru að gera. Í janúar á skólaþróunardegi SARE fjalla svo skólarnir um sinn þátt. Í morgun skiptum við líka skólunum í kjarnahópa. Þar sem við setttum "reynda" skóla með skólum sem eru að taka sín fyrstu skref. Ætlunin er að hver kjarni vinni saman og styðji aðra sem í honum eru. Við höldum að þetta eigi eftir að vera frábært samstarf.  

Frá upphafi hefur það verið ljóst að hver skóli vinnur á eigin forsendum. Í einhverjum leikskólum er áhersla á tengsl tónlistar og veðurs, á öðrum er fólk að byggja og byggja, og þá verður kannski tengsl byggingarlistar og veðurs skoðuð. Á enn öðrum stað hafa íslenskar bókmenntir og bókmenntaarfur verið viðfangsefnið. Hvað er skrifað um veður í bókum, er hægt að semja bækur um veður? Hvað með hvernig við tölum um veðrið er það kynbundið gæti verið enn ein nálgunin, af hverju er rigningin hún, en stormurinn hann? Af hverju er hún moldin, en hannsteinninn? Þannig er hægt að tengja veðrið jafnréttisumræðunni. Annarstaðar þar sem fólk hefur verið að sérhæfa sig í stöðvarvinnu, ætlar að að vinna með veðurstöðvar, t.d. úti. Á yngstu deildunum er mörg börn að upplifa leika úti í mismunandi veðrum í fyrsta sinn. Að gera skráningu á upplifun þeirra og túlka getur verið viðfangsefni einhverra. Svo er það auðvitað spurningin um hvað er gott veður og hvað er vont veður. Af hverju er gott veður, gott og af hverju er vont veður, vont? Finnst öllum sama veður vera gott veður? Hvað með börn sem eru nýflutt til landsins, hvernig upplifa þau veðrið og var það öðruvísi þar sem þau áttu áður heima. Er hægt að leika úti í öllum veðrum? Hvernig var verðrið þegar mamma og pabbi voru að alast upp, já eða afi og amma? Hvernig var veðrið þegar ég fæddist?

Þetta var hluti af því sem fólk var að pæla í morgun og á eftir að halda áfram að pæla og auðvitað miklu meira næstu daga og vikur. Ég hlakka mikið til að sjá og heyra um þær tilgátur sem börnin setja fram.


Enn að grufla í tölum Hagstofunnar

Ég er í þeirri deild sem get algjörlega gleymt mér í tölum, sérstaklega ef þær tengjast áhugamálum mínum. Þess vegna finnst mér vefur Hagstofunnar alveg frábær. En þrátt fyrir mikla ánægju af úrvinnslu talna af vef þeirra ætla ég að segja umfjöllun um tölfræði leikskólans lokið hér á blogginu mínu í bili. Ég þarf víst að fara að snúa mér að öðrum og þarfari verkum. Svona eins og að hitta fulltrúa á annan tug leikskóla á morgun til að funda um verkefni.

Síðasta myndin sem ég hendi hér inn er unnin út frá annarsvegar tölum um barngildi og hinsvegar fjölda starfandi leikskólakennara. Sem fyrr er inn í þeim tölum öll stjórnun sem ætti auðvitað að draga frá en ég sleppi því í þetta sinn. Fyrir þá sem ekki þekkja barngildin þá eru þau leið til að stýra starfsmannamagni með tilliti til aldurs barna.

Þannig er 5 ára barn ígildi 0,8 barngildis, hver leikskólakennari (eða starfsmaður) má vera með 8 barngildi. Því eru 20 5 ára börn í hóp með tveimur starfsmönnum. Ef litið er á yngstu börnin þá eru þau 2 barngildi hvert, og því má hver starfsmaður vera með 4 ársgömul börn. Ef 12 árs gömul börn eru saman á deild þarf 3 starfsmenn. (Ekki er tekið tilliti til lengri vistunartíma, opnunartíma eða kaffitíma).    

 

tafla leikskóla


Hvar eru leikskólakennararnir á höfuðborgarsvæðinu?

Ég er enn að skoða tölfræðileg gögn Hagstofunnar. Sjálfsagt eru þetta tölur sem sveitarfélögin hafa legið yfir og eru þeim vel kunnar. Það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir borgina að koma jafn illa út úr samanburði við önnur sveitarfélög og þar kemur fram. Á myndinni hér að neðan má sjá hvernig leikskólakennarar skiptast á höfuðborgarsvæðinu. Svo má líka spyrja hvað hafa hin sveitarfélögin verið að gera sem Reykjavík hefur ekki verið að gera?

Þróun leikskólakennara

Illa upplýstur fréttamaður

Ég hlustaði á menntamálaráðherra í Íslandi í dag áðan. Hún var kölluð til vegna hinnar nýju menntastefnu. En spyrilinn hafði ekki alveg jafn mikinn áhuga á öllu sem snéri að hinum nýju lögum. Það sem m.a. vakti mikla athygli hjá honum er sú "fásinna" að leikskólakennarar verði með sömu menntun og aðrir kennara. Spyrilinn bar því við sem rökum að: "Það fyrirfinnast hreinlega ekki margir leikskólakennarar sem eru með leikskólakennaramenntun". Hvað þá ef menntunin verður lengd. Hann hafði sömuleiðis miklar áhyggjur af kostnaði samfélagsins vegna þessara "fásinnu". Máli sínu til stuðning benti hann á menntun ljósmæðra. Mér fannst ráðherra svara nokkuð vel fyrir og benda á framtíðarhagsmuni, benda spyrlinum á að þetta væri maraþon en ekki spretthlaup. Kannski ekki með þeim orðum en skilningurinn var sá sami. Í menntamálum er ekki verið að tjalda til einnar nætur. 

En snúum okkur að því sem spyrillinn Sölvi hélt m.a. fram: Að í leikskólum fyrirfinnist hreinlega ekki margir leikskólakennarar. Hvað skyldi vera rétt í þessu?

Árið 1997 voru 769 leikskólakennarar við störf, þá útskrifaði einn skóli leikskólakennara, Fósturskóli Íslands, árið 2007 voru samkvæmt töflum Hagstofunnar 1.498 leikskólakennarar við störf og  tveir skólar, Háskólinn á Akureyri og Kennaraháskóli Íslands menntuðu leikskólakennara.  Á þessum tíu árum hefur leikskólakennurum fjölgað um 94%. Þetta er tala sem sýnir okkur að það er ekkert ómögulegt. Hins vegar hefur uppbygging leikskóla líka haldið áfram og hún krefst að sjálfsögðu tiltekins mannafla. En það má telja að við séum að nálgast ákveðin ytri mörk útþenslunnar og að á næstu árum muni nást ákveðinn stöðugleiki. Kannski að spyrillinn hefði átt að vinna heimavinnuna sína aðeins betur.

Árið 2004 vann ég spá um þörf á leikskólakennurum miðað við annarsvegar að 100% starfsmanna í leikskólum væru leikskólakennarar og hinsvegar að 2/3 væru leikskólakennarar. Spána vann ég út frá ákveðnu líkani sem ég bjó mér til og tók þar tillit til dvalarlengdar, foreldraorlofs og afleysinga, ég nýtti að sjálfsögðu gildandi barngildaútreikninga menntamálaráðuneytisins og mannfjöldaspá Hagstofunnar og setti þar líka fram útreikninga um fjölgun leikskólarýma á landinu. Ef ég uppfærði líkanið í dag mundi ég sennilega hækka hlutfall barna í yngsta aldurshópnum í leikskólanum. Að öðru leyti tel ég það standa nokkuð vel.   

Af því að fréttamenn virðast oft álíta að Ísland miðist við höfuðborgarsvæðið er ekki úr vegi að skoða hvernig málum er háttað í Reykjavík. Samkvæmt skýrslum Hagstofu Íslands störfuðu, árið 2003, 316 leikskólakennarar inn á deildum með börnum í Reykjavík. Við þá tölu bættist nokkur fjöldi starfsmanna með annarskonar háskólamenntun. Í leikskólum borgarinnar voru á þessum tíma að sjálfsögðu mun fleiri leikskólakennarar við störf, við stjórnun, verkefnastjórnun og við sérkennslu.

                                                                                                   

Til að manna allar stöður með börnum inn á deildum árið 2003 þurfti að bæta við 700 leikskólakennurum hjá borginni. Nú er staðan hins vegar sú að samkvæmt sömu lögum og Sölvi var að fjalla um eru nú aðeins 66% staða með börnum skilgreindar leikskólakennarastöður. (Þannig má segja að í stað þess að krafan sé að allir starfsmenn með börnum hafi 3 ára háskólapróf er nú gert ráð fyrir að 66% hafi 5 ára háskólapróf).

                                                 

Ef ég geng út frá þeim forsendum sem ég gaf mér árið 2004 ættu leikskólakennarar í stöðum með börnum hjá borginni að vera einhversstaðar í kring um 760 (eyk við vegna áherslu á yngri börnin) til að standa undir ákvæðum laga. Miðað við tölur Hagstofunnar starfa nú  626 starfsmenn með háskólapróf í leikskólum borgarinnar, ef frá þeirri tölu er dregnir um 150 (leikskólastjórnun, verkefnastjórnun, sárskennslustjórn) standa eftir 476 starfsmenn. Til að uppfylla ákvæði laga þyrfti eitthvað um 300 leikskólakennara í viðbót. Og vel að merkja Reykjavíkursvæðið hefur löngum verið mun verr statt varðandi fagfólk en ýmis önnur svæði á landinu t.d. Akureyri.

                                                

Það má líka minna á að í haust hófu 137 leikskólakennaranemar nám við háskóla landsins. Í viðtali við rektor HA nýlega tilgreindi hann sérstaklega fjölgun á leikskólakennarabraut HA.

                                                                                                   

Hér að neðan læt ég svo fylgja með mynd úr skýrslunni minni þar sem staðan er annarsvegar skoðuð frá 100% mönnun og hins vegar 66% mönnun og töflu þar sem ég reyndi að spá fyrir um hvert landsvæði. Á sínum tíma, þegar ég vann þetta, voru uppi sterkar raddir um að breyta lögunum í þá átt sem nú er orðið.

                                                                          

 
spá um leikskólakennara

Mynd 2.1.2 þörf fyrir leikskólakennara í Reykjavík miðað við mismunandi forsendur

                                                                                                                                                                                                       

Tafla úr skýrslunni minni frá 2004 þar sem ég skoða hvert landsvæði fyrir sig og fylgi þar gömlu kjördæmamörkunum.

*Fjöldi stöðugilda leikskólakennara sem þarf að bæta við til þess að uppfylla lágmarksþörf fyrir leikskólakennara í starfi með börnum á mismunandi landsvæðum miðað við gefnar forsendur og miðað við fjöldi leikskólakennaranema á sömu svæðum þann 1. des 2003 (dálkur 2).

 Fjöldi stöðugilda leikskólakennara við störf með börnum 1. des 20032003 Viðbætur til að ná 100% mönnun 2003 Viðbætur til að ná 66% mönnunFram.þörf, til að ná 100% Fram.þörf til að ná 66%Nemar árið 2004 við HA og KHÍ
Reykjavík316700300809430253
Kraginn275370165431202
Suðurnes5281411388843
Vesturland536628894326
Vestfirðir172713784315
Norðurland vestra212711602825
Norðurland eystra10077171375090
Austurland294824834725
Suðurland7476321327247
SAMTALS937147263119571003524
*Bætti inn í töfluna upplýsingum um fjölda stöðugilda 1. des 2003 - þar sem þær tölur eru notaðar í útreikninga á þörf (14.24 þann 16 sept).

Og svona að lokum þá getur eitt símtal stundum borgað sig. Úti í samfélaginu er víða fólk sem býr yfir mikilli þekkingu á einstökum málum, Hagstofan er líka gríðarlega góð uppspretta alla vega tölfræðilegra upplýsinga. Nú er ég auðvitað ekki fréttamaður og hef aldrei verið en kannski er þetta eitthvað  sem að fréttamenn á leið í fréttaskýringarviðtöl ættu að íhuga.  


Menntaþing

Á föstudaginn fór ég á menntaþing, menntamálaráðherra í tilefni nýrra laga um öll skólastigin og um kennaramenntunina. Það var tilkomumikið að hitta sjá 800 kennara af öllum skólastigum safnast saman og ræða og pæla í sínum málum. Ræða ráðherra var upplýsandi og sagði töluvert um sýn hennar á framtíð skólamála. Lykilorðin eru sveigjanleiki og frelsi og svo eru öllu pakkað inn í lýðræðisbúning. Að hluta virka þessar lýðræðisáherslur eins og kápa til að hylja það sem undir er. Mér finnst nefnilega vera svolítill frjálshyggjusvipur á sumum af þeim nýmælum sem eru í lögum um leikskóla og jafnvel miðstýringarárátta. Með því á ég t.d. við hæfnisviðmið og þrepamarkmið í leikskólastarfinu. Hvorugt atriði sem falla mér í geð. Sumt annað er ég ánægð með og tel vera til bóta. Ég tek reyndar undir orð Þorbjargar Helgu en í málstofu um leikskólann taldi hún að með nýjum lögum væri frelsi leikskólans frá því sem áður var, vera skert. Sumt af því sem hún taldi aftur ógnandi við nýju lögin tel ég hinsvegar vera styrkeika þeirra. Þar á meðal það ákvæði að fermetrum á barn verði fjölgað. Hún taldi það ákvæði hugsanlega eiga eftir að íþyngja sveitarfélögum. Um það skal ég ekki segja. Ég veit hinsvegar að það er líklegt til að styrkja innra starf fjölmargra skóla og það á eftir að hafa mikil áhrif á líðan bæði barna og starfsfólks. Og þannig að að auðvelda sveitarfélögum rekstur leikskóla.

Aðalerindin 

Aðalerindin voru nokkuð misjöfn, Catherine Lewis fjallaði um það sem hún kallar lesson study, og byggir í því að rýna í eigið starf og starfsaðferðir, en ekki síst í það hvernig börn læra. Mörgum leikskólakennurum sem ég hitti fannst að á eftir fyrilestri Lewis hefði mátt koma umfjöllun um uppeldisfræðilega skráningu því tenging þar á milli er mjög ljós. Bæði byggir á því að ígrunda eigið starf og það sem er á gerast á deildinni (skólastofunni) í ljósi kenninga og fyrri þekkingar. Einn þinggestur spurði mig hvað ég teldi að leikskólakennurum hafi fundist um fyrirlestur Lewis, sjálfur taldi hann að leikskólakennarar og yngri barna kennarar hefðu skilið hann en hann hafi farið ofan garðs og neðan hjá framhaldsskólakennurum. Vinnubrögð í þessa átt væru þeim ekki jafn eiginleg og okkur sem vinnum á yngri stigunum.  

Ég var að hugsa um að sleppa því að hlusta á Jens Bjornavold en var eftir á fegin að hafa ekki gert það. Hann var afar áhugaverður en ég er ekki viss um að margir leikskólakennarar séu mér sammála um það. Held að hann hafi verið of sértækur fyrir allflesta. Ástæða þess að ég hlustaði á Bjornavold var að á undan honum kom fram kór Fögrubrekku undir stjórn Jennýjar Gunnarsdóttur og Asako Ichiachi og þau voru guðdómleg. Ég gat náttúrulega ekki sleppt því að hlusta á þau og ílentist svo. Takk Fagrabrekka.

Málstofa 

Ég fór í málstofu um leikskólann um morguninn, það sem mér fannst helst að var að erindi fólks voru of löng og ekki gafst nægur tími til fyrirspurna. Margir leikskólakennara höfðu á orði fyrir ráðstefnuna að þá undraði að enginn leikskólakennari væri á dagskrá á málstofu um leikskólann. Bæði í málstofu um grunnskólann og framhaldsskólann var þeirra fulltrúi að sjálfsögðu í pallborði. Þegar að málstofunni kom hafði ráðuneytið áttað sig á þessu og bað Sigurlaugu Einarsdóttur leikskólastjóra að vera með, hún byrjaði á að greina frá að hún væri frekar óundirbúin enda bara beðin með tæpum sólahringsfyrirvara.

Ráðherra var mjög sýnileg á þinginu. Hún sló á létta strengi en tókst samtímis að vera alvarleg. Tókst það bara nokkuð vel. Einn þinggest hitti ég sem var afar ánægð með frammistöðu ráðherrans. Sagði hana bara vera í vitlausum flokki. En er einhver einhvertíma í réttum flokki?, spurði þá annar kennari í hópnum.  

Umkvörtunarefni mitt við ráðuneyti menntamála 

Annars er það mitt helsta umkvörtunarefni við ráðuneyti menntamála sem hefur faglegt eftirlit með starfi leikskóla og ber á því ábyrgð að þar hefur ekki starfað leikskólakennari síðan Svandís Skúladóttir fór á eftirlaun á síðustu öld. Mér finnst það alveg ótrúleg móðgun við leikskólakennara að þar hafa menn ekki talið þörf á að nýta sér þekkingu þeirra að staðaldri. Það er ekki nóg að kalla til fólk í starfshópa inn á milli. Ég veit að stéttarfélag leikskólakennara hefur í gegn um tíðin gert við þetta athugasemdir en fyrir tómum eyrum. Kannski var undirbúningur ráðuneytisins fyrir málstofuna um leikskólann lýsandi dæmi um viðhorf ráðuneytisins gagnvart leikskólanum eða einmitt afleiðing þess að þar starfar enginn leikskólakennari.


Karlar prjóna lopapeysu á kaffihúsi

Í dag skrapp ég á fund á kaffihúsi. Þegar ég kom inn blöstu við mér tveir miðaldra karlar. Litu út fyrir að vera í landvistarleyfi af sjónum. Minntu á suma smábátaútgerðarmenn í vaxtarlagi. Þéttir á velli og vel skeggjaðir. Nema annar var með hringprjón og á honum lopapeysuskrokk , hinn var með ermi á fjórum prjónum. Fyrir framan þá lá prjónauppskriftablað og þeir virtust önnum kafnir við að telja út munstur enda að prjóna þetta hefðbunda lopapeysumunstur. Fundarfélagi minn laumaði út úr sér. Hvað, bara handprjónasambandið mætt á staðinn. Ég sá fyrir mér svona prjónakaffi eins og þau gerast best. Voru algeng þegar við bjuggum í Seattle fyrir nokkrum árum. Ég var með myndavél í veskinu og dauðlangaði til að smella af þeim mynd en ákvað svo að sleppa því. Fannst það fullfrekt af mér. Hvað um það, lifi handprjónið.  

Annars minnti þetta mig á sögu sem afi sagði mér af kunningja sínum á sjónum sem prjónaði allt á fjölskylduna. Það var reyndar einhver tíma um miðja síðustu öld. Svo fór ég líka að hugsa hvers vegna vekur það svona mikla eftirtekt að tveir karlar sitji með prjónana sína á kaffihúsi, hvað hef ég ekki séð margar konur gera það.  Á fundum og í tímum líka (reyndar pirrar það mig, það heyrist nefnilega iðulega klikk, klikk, klikk í prjónum og einbeiting mín út um gluggann). Þessi skemmtilega sýn fékk mig til að hugsa um konur sem eru að sinna dæmigerðum karlastörfum. Horfa karlar á og hugsa enn hvað þetta er krúttlegt? (Stóð mig nefnilega að því).

 


Verkefni um veður og menningu

Nú er vetrarstarf SARE að fara að stað. Fyrsta verkefni okkar verður tengt því sem stendur hjarta okkur Íslendinga næst þ.e. sjálft veðrið. Um það getum við talað, skrifað, skáldað, skoðað, skemmt okkur og hvað eina. Veðurverkefni SARE er einmitt ætlað að gera allt þetta. Við ætlum að fjalla um veður og áhrif þess á líf okkar og störf í víðri merkingu. Í morgun sendi ég út póst til þeirra leikskóla sem eru í SARE (samtök áhugafólks um starf í anda Reggio Emilia) um verkefnið og fyrsta fund okkar í næstu viku. En ef það eru fleiri leikskólar sem starfa í anda Reggio Emilia og hafa áhuga á að vera með en hafa ekki af einhverjum ástæðum fengið bréf frá mér. Er um að gera að senda mér línu. Verkefnastjóri að hálfu SARE verður Guðrún Alda Harðardóttir, helsti sérfræðingur landsins í hugmyndafræði og vinnubrögðum Reggio Emilia. Læt svo fylgja hér með kynningarbréfið á verkefninu frá því í sumar.   

Verkefni á vegum SARE

                                                                                                                                  

Ég mæti gömlum manni,

í morgun í skúraveðri

og karlinn hann var klæddur,

í kápu úr brúnu leðri.

Ég sá að hann vildi eitthvað segja,

svo ég aðeins beið,

Já einmitt sagði hann, já einmitt,

og fór sína leið.

                                                                                                                                                                            

Leikskólar í SARE, tillaga að verkefni veturinn 2008- 2009

                                                                                                                                                                                  

Að leikskólar taki fyrir veðrið. Til að undirbúa verkefnið verði námskeið með þeim a.m.k. þeim leikskólakennurum sem leiða verkefnið í hverjum skóla jafnvel fleiri starfsmönnum. Á námskeiðið verða fengnir sérfræðingar um; veður, menningarsögu tengda veðri og eðlisfræði. Þessir aðilar kafi með þeim sem eru á námskeiðinu ofan í hugtök og hugmyndafræði tengda veðri. Jafnframt verður boðið upp á námskeið um uppeldisfræðilega skráningar og tæknivinnslu þeirra í tengslum við verkefnið.

Hugmyndin er að byggja veðurverkefnið þannig upp að fá fram tilgátur barna um ýmislegt tengt veðri og síðan að vinna með þær. Hver skóli útfærir verkefnið á sinn hátt og tengir sínu umhverfi og menningu.

                                                                                                                                                                                      

Á meðan á verkefninu stendur verða reglulega haldnir sameiginlegir fundir með leiðtogum (verkefnastjóra) skólanna. Á þeim fundum verður pælt sameignlega í a.m.k. einni skráningu í hvert sinn. Á skólaþróunardegi SARE þann 30. janúar verða öll verkefnin kynnt.

100_5328


Hver er ég, Kristín Dýrfjörð?

Ég hef í gegn um tíðina fengið ýmsar athugasemdir um skoðanir mínar, svo langt hefur það gengið að utanaðkomandi hafa talið sig þurfa að kvarta við samstarfsfólk mitt og yfirmenn. Ég lít ekki á það sem mitt hlutverk að vera skoðanalaus þó ég sé kennari. Þvert á móti. En mér finnst líka rétt að nemarnir viti hvar ég stend, það er ekkert leyndarmál. Þess vegna ákvað ég fyrir nokkrum árum að skrifa kynningu á sjálfri mér. Bréfið hér að neðan er einmitt sú kynning og er að finna inn á heimasvæði námskeiðs sem ég kenni. Í gegn um tíðina hef ég kennt hundruð verðandi leikskólakennurum, ég get sagt með stolti að sumir aðhyllast sömu hugmyndir og ég en líka með stolti að aðrir gera það alls ekki. Allt þetta fólk hefur að sjálfsögðu sjálft valið hvar það stendur og af því er ég afar stolt.  

Hjá mér var nýlega í heimsókn leikskólakennari og ég var að segja henni frá fyrirlestri í leikskólafræðum sem var tengdur kenningum skammtafræðinnar. Ég minntist í leiðinni á hvernig ég nota hugtakið PRISMA í kynningunni á sjálfri mér.  Hún vildi fá að lesa þessa kynningu, þegar hún var búin bað hún mig að skella henni inn á bloggið mitt. Fannst kynningin eiga erindi til fleiri. Held reyndar að hún sé bara svona skotin í hugmyndinni um uppeldisfræðilegt prisma.  Kannski er ég bara svara klukkinu hennar Ingibjargar Margrétar á nýjan hátt.

 

Bréf mitt til nemanna

Sem hluti af námi ykkar hafið þið sennileg rekist á Uppeldislega játningu John Dewey, þar sem hver málsgrein byrjar á: Ég trúi. Ég er ekki að setja fram mína uppeldislegu játningu í saman skilningi en mér finnst mikilvægt að þið vitið hvar ég stend. Hverjar mínar áherslur séu og á hvað ég trúi í uppeldisfræðum. Dewey segir að hann trúi að menntun sé lífið sjálft en ekki undirbúningur undir það sem koma skal (MPC, Article 2 What the school is 2. málsgrein). Undir þau orð tek ég heilshugar.

 

Mitt markmið er ekki að segja ykkur eða fræða um hvað sé rétt og hvað sé rangt – ekki að kenna ykkur um hin einu sannindi eða hina einu aðferð. Mitt hlutverk er að vekja forvitni – fá ykkur til að hugsa – stundum eftir sömu línum og ég ... stundum eftir einhverju öðrum – það er undir ykkur komið.

 

Öllum er frjálst að hafa sína skoðun – öllum er frjálst að koma þeim á framfæri (mér líka) en allir verða að geta fært rök fyrir því sem þeir setja fram. Önnur rök en, „mér bara finnst þetta“, eða „svona er þetta“. Svo það sé alveg á hreinu þá tek ég ekki allar skoðanir góðar og gildar. Ég get til dæmis ekki liðið það sem ég kalla mann- og/eða barnfyrirlitningu jafnvel þegar fyrir henni eru færð rök. Ég áskil mér rétt til að mótmæla og setja mínar skoðanir/rök fram. Ef ég er á annarri skoðun en þið, merkir það ekki endilega að það sé rétt skoðun eða að ég ætlist til að þið aðhyllist hana. En, ég mun reyna að færa fyrir skoðunum mínum rök. Hvort þið kaupið þau eða ekki eða hafið betri rök sem ég skal hlusta á – er ykkar mál. Einn grundvöllur lýðræðis er samræða – samræða ólíkra sjónarmið. Samræða þar sem rök vega þungt. Hvernig þessi rök eru er svo allt annað mál.

Mannskilningur og lífsýn 

Ég held að þið vitið mörg af afspurn að ég aðhyllist ákveðna hugmyndafræði, ég hef aldrei haldið því leyndu. Hugmyndafræðin sem ég aðhyllist og hef unnið að einhverjum marki eftir frá því að ég útskrifaðist sem „fóstra” fyrir um 20 árum byggist á ákveðinni lífsýn og mannskilningi. Hún byggist á uppeldi mínu, reynslu sem ég hef orðið fyrir og menntun minni. Hún er að hluta það nesti sem ég fékk úr barnæskunni og að hluta það sem ég hef tínt upp af götu lífsins. Allt hefur þetta mótað hver ég er. Mér finnst mikilvægt að þið gerið ykkur  snemma grein fyrir hver sé ykkar eigin mannskilningur og lífsýn.[1]Þættir sem móta uppeldislega sýn ykkar.

 

Fröde Söbstad skilgreinir uppeldislega sýn sem:

Skynjun á raunveruleika, gildismat og afstaða sem er undirstaða uppeldislegra starfa viðkomandi. Að baki vali viðkomandi á aðferðum og framkomu eru alltaf einhverjar hugmyndir, gildi og afstaða. Þessa uppeldislegu sýn er m.a. hægt að flokka í nokkra flokka að mati Söbstad. Þá mikilvægustu telur hann vera, heimspekilegt viðhorf, trúarlega afstöðu og  félagsfræði-, stjórnmála- og sálfræðilegar-kenningar sem við aðhyllumst.

 

Ég hef í gegn um tíðina verið frekar upptekin af ýmsum sögulegum þáttum og skal alveg viðurkenna að saga hefur ávallt verið eitt af mínum uppáhaldsfögum. Fræðimenn sem ég hef lesið og hafa haft mikil áhrif á mig frá upphafi eru bæði Fröbel og Dewey. Annar er talinn standa fyrir hin kvenlægu gildi í leikskólafræðum, hinn er talinn höfundur hinna karllægu gilda. Sjálf taldi ég þetta að hluta  – en því meira sem ég les finnst mér það ekki endilega vera rétt. Það sem hrífur mig hjá þeim er annarsvegar sýn á barnið og hinsvegar sýn á samfélagið og lýðræðið. Ég hef líka verið hrifin af hugmyndafræði sem er kennd við borgina Reggio Emilia á Ítalíu. Ekki vegna þess að það er listuppeldi eins og þið vitið að margir álíta það vera – ekki vegna þess að þar er umhverfið þriðji kennarinn, að hluta vegna áherslu á sköpun, en aðallega vegna hugmynda þeirra um lýðræði og mikilvægi samræðunnar. Vegna  lykilhugtaka eins og pedagogy of listening eða uppeldisfræði hlustunnar,  að í lýðræði felist það að hlusta. Carlina Rinaldi segir í Reggio byggist hugmyndafræði þeirra að stórum hluta á uppeldisfræði hlustunnar. Sem feli í sér að hlusta á raddir sem sjaldan fá að hljóma, hlusta á það sem við reynum svo mikið og oft af öllum mætti að þagga. Hlusta eftir þessum nítíu og níu málum sem við tökum frá barninu.

Hlustun

Mikilvægi þess að hlusta varð mér ljóst sem aldrei fyrr nú í haust þegar ég heimsótti leikskóla þar sem börn voru börn af mjög ólíkum uppruna. Ég var í leikherbergi með þremur, fjögurra og fimm ára stelpum og þær voru mikið að rabba við mig. Ein segir mér með stolti að þegar hún verði stór, verði hún kona. Önnur tekur undir og segir já ég verð líka kona. Nei, nei segir sú þriðja, ég verð ekki kona ég verð stór stelpa. Upp úr þessu spannst mikil umræða sem ég tók þátt í, m.a. um að maður gæti bæði verið stelpa og kona á sama tíma. Þessi unga stúlka keypti ekki þau rök. Vinkonur hennar reyndu mikið að sannfæra hana en hún var föst fyrir og örugg í þeirri vissu að hún yrði ekki kona, heldur stór stelpa. Þessar þrjár stelpur voru frá þremur mismunandi upprunalöndum. Ein er íslensk, ein frá Afríku og sú þriðja, þessi sem vildi alls ekki verða kona er tælensk. Ég velti heilmikið fyrir mér hvort hér væri um vandmál varðandi íslenskuna. En fannst það samt ekki vera, fannst allar hafa góð tök á íslenskunni. Það var ekki fyrr en ég kom heim og fór í alvöru að hugsa um það sem hún sagði að ég hálf lamaðist. Hvaða mynd höfum “við” af tælenskum konum? Hver er ykkar mynd af konum frá suðaustur Asíu? Þessi litla stúlka veit það.

 

En svona geta myndir verið mismunandi – þegar ég sagði vinkonu minni frá Quatar, velmenntaðri konu, múslima sem klæðist kufli sem hylur allan líkamann og slæðu yfir öllu hári. Þá var hún mest upptekin af því að litla stúlkunni sem sagði með stolti: Þegar ég verð stór, verð ég kona. Eitthvað sem ég hafði ekki pælt í og er enn að pæla í frá sjónarmiði þessarar vinkonu.

Trú á reglur - eða ekki! 

Annað sem ég held að gerist ekki í leikskóla þar sem hlustun er stunduð er regla eins og fullorðnir ráða. Mín skoðun er að slík regla byggi ekki á trú á getu barnsins, heldur á öryggisleysi og vandamálum hins fullorðna. Á þörf okkar fullorðna fólksins til að hafa stjórn aðstæðum. Og ef við höfum hana ekki, ræðum við bláköld um agaleysi barnanna. Eitt af því sem við gerum í þessu námskeiði er að afbyggja texta. Hluti af því felur í sér að setja upp eða finna andstæðuna. Fullorðnir ráða – hver er andstaðan, er það börn ráði (börn eru jú andstaða/heiti fullorðna) eða er það að fullorðnir eru valdalausir? Ef fullorðnir eru valdalausir hverjir hafa þá valdið? Hvað er þá átt við með völdum? Er það völd til að ráða yfir öðru fólki – völd til að segja fólki að sitja og standa samkvæmt geðþótta þess sem hefur valdið? Ráða hverju? Hvaða sýn eða mannskilningur ríkir þar sem þessi setning er höfð að leiðarljósi í starfinu? Með því að afneita fullorðnir ráða reglunni er ég þá að aðhyllast því að börn eigi að ráða því sem þau vilja?

Samræða 

Ég aðhyllist líka starf í anda Reggio Emila vegna samræðu sem þar hefur átt sér stað við margt andans fólk, fólk eins og Dewey, Montessori, Freire og jafnvel Makarenko, við Vytgosky og líka Piaget. En líka vegna tengsla þess við næsta umhverfi og þá sem hafa mótað það. Það samræmist að mínu viti vel að aðyllast starf í anda Reggio Emila og að aðhyllast kynjafræði og auðvitað það sem nefnt er gagnrýnin uppeldisfræði. En ég skal líka taka það fram af gefnu tilefni að ég held ekki að leikskólakennari getið unnið í anda Reggio klukkutíma á dag. Alveg eins og ég held ekki að ég geti unnið samkvæmt hugmyndum Rudolf Steiner (Waldorf)  klukkutíma á dag og orðið við það Waldorfsk. Ég get vel nýtt mér ýmislegt úr þeirri hugmyndafræði, en það er bábilja að halda að það að taka upp dag/vikuskipulag í anda Steiner eða að nota waldorfdúkkur í leikskólanum geri hann að Waldorfleikskóla. Það þarf meira til. Ég held heldur ekki að það að setja flöskur með lituðu vatni út í glugga og/eða vinna skapandi starf í klukkutíma 2x í viku geri skóla „reggióskan”.

 

Í mörg ár og allt of mörg ár hef ég ekki lagt á mig þau óþægindi að nenna að standa í hugmyndafræðilegri deilu um leikskólastarf við þá sem aðhyllast aðrar sýn og hugmyndir en ég geri. Svona allavega ekki ótilneydd. VEL að merkja það er nokkuð öruggt að ég deili um 80% -90% skoðunum með flestu fagfólki um það hvað felist í gæða leikskólastarfi, jafnvel því sem annars er á öndverðum meiði við mig. En það eru þessi 10%  - 20% sem eru í grunninn öðruvísi og byggja kannski að einhverju leyti á lífsýn minni og mannskilningi. Sem gera það að verkum að ég get ekki fellt mig við ýmis vinnubrögð. Ég hef ekki keypt þau rök sem fyrir þeim eru færð og ég get ekki fellt mig við þann mannskilning sem þar birtist.

Hugmyndafræði 

Nýlega var ég að hlusta á fyrirlestur um muninn á heimspeki annarsvegar og hugmyndafræði hinsvegar, þar var sett fram skilgreining á hugmyndafræði sem mér fannst tala til mín og kannski eitthvað sem líka gerir mér auðveldara með að skýra mína afstöðu. Skilgreining var eitthvað á þessa leið að með hugmyndafræði væri átt við[2]:

 

að hugmyndafræði einhvers hóps eða menningarsamfélags sé sá hugsunarháttur, kenningakerfi, goðsagnir eða tákn sem einkenna hópinn eða þá sem tilheyra honum. Hugsunarháttur sem þeir sem tilheyra hópnum færa rök fyrir og berjast jafnvel fyrir en samtímis sé annar hópur sem andmælir.

 

Ef til vill er komið að mér að vera í andmælendahópnum. Að taka á mig þá ábyrgð að andæla jafnt sem að fylgja eftir mínum skoðunum. Hingað til hef ég að mestu leyft mér að vera í meðmælendahóp minna skoðana. Það er nefnilega þægilegast. Eins og þið vitið er gagnrýnin uppeldisfræði að hluta eins og hún birtist í dag rakin til Paulo Freire. Frá honum eru komin ýmis lykilhugtök. Hugtök sem sum hver eru flókin, full af óreiðu og mótsögnum. Sem eiga það til að rugla mann algjörlega í rýminu.                                                                                                                                                                    

Prisma

Gagnrýnin uppeldisfræði er í hugum sumra eins og prismaog þegar viðkomandi hefur náð á því tökum er ekki aftur snúið. En prisma er þrístrent gler sem brýtur ljósgeisla og þá sjást litirnir sem mynda litrófið. Þannig gefur prismað okkur ekki bara nýtt sjónarhorn heldur hjálpar það okkur að kljúfa það sem við segjum og gerum í ákveðnar frumeindir. Hugsið ykkur ef við ættum til einhverskonar uppeldisprisma, sem gerði okkur kleift að skoða vinnubrögð okkar og hugmyndir, sjá hvað liggur að baki ákvörðunum okkar og gerðum. Sumir segja að gangrýnin uppeldisfræði sé þetta prisma. Orðræðugreining og afbygging er líka hluti prismans. Þar koma inn nöfn annars fræðafólks sem þið eigið eftir að kynnast og kannski að hafa á ykkur nokkur áhrif, má þá nefna frönsku heimspekinganna, Foucault, Derrida, Deleuze og Guattari sem hafa haft mikil áhrif á hin ýmsu fræðasvið m.a. innan leikskólans.

prisma

 

Prisma 

(Sjáið hvernig hvítt ljós fer fellur á prismað en greinist í litróf þegar það kemur út hinum megin)

Eitt af því sem er markmið þessa námskeiðs er að kynna ykkur aðferðir til að lesa úr og kynna ykkur á gagnrýnin hátt ýmsar stefnur og strauma leikskólafræðanna. Kynna ykkur verkfæri sem hægt er að nota til að komast að kjarna máls. Eitt verkefni gæti verið að skoða hvernig ég sjálf kem fyrir mig orði – orðræðugreina mig. Ég er viss um að ef einhver leggur það á sig á sá hinn sami eftir að komast að því að ég eins og flestir aðrir hættir við að vera í mótsögn við sjálfa mig – vera ekki alltaf rökrétt.  


[1] Sjá kennslubréf hér að neðan um ýmsar tegundir mannskilnings

[2]Reyndar fer þessi skilgreining ansi nálægt skilgreiningu Deweys á samfélagi. Bendi ykkur á að lesa fyrirlestur minn um John Dewey á webct.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband